Hoppa yfir valmynd
26. júní 2019

Sálfræðingur - Akranes

Sálfræðingur

Laus er til umsóknar 100% staða sálfræðings við heilsugæslustöðvar Heilbrigðisstofnunar Vesturlands. Staðan er laus frá og með 1 september 2019.

Starfið felst fyrst og fremst í greiningu og meðferð barna. Einnig þátttöku í hópmeðferð, skipulagningu og þróun sálfræðiþjónustu á Vesturlandi í samvinnu við yfirsálfræðing. Einnig þátttaka í og þróun geðheilsuteymis.

Helstu verkefni og ábyrgð
Meðferð og greining barna og vinna með fjölskyldur þeirra
Hópmeðferð fyrir börn og ungmenni
Þátttaka í stefnumótun sálfræðiþjónustu heilsugæslunnar á Vesturlandi
Þátttaka í og þróun geðheilsuteymis. 

Hæfnikröfur
Réttindi til að starfa sem sálfræðingur á Íslandi.
Reynsla af klínísku starfi með börnum æskileg.
Þekking og reynsla af hugrænni atferlismeðferð æskileg.
Reynsla af notkun sálfræðilegra prófa og greiningartækja æskileg.
Samskiptahæfni og sveigjanleiki.
Ökuréttindi.
Góð íslenskukunnátta er skilyrði.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.
Starf innan heilsugæslunar gefur möguleika á fjölbreytni, þverfaglegri samvinnu og góðri klínískri reynslu.
Umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu stofnunarinnar www.hve.is eða www.starfatorg.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknum skulu fylgja leyfisbréf, ítarlegar starfsferilskrár, nöfn meðmælanda og persónulegt kynningarbréf. 

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.08.2019

Nánari upplýsingar veitir
Emil Einarsson - [email protected] - 432-1200


Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Heilbrigðisstofnun Vesturlands (08716)
Merkigerði 9
300 Akranes


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum