Hoppa yfir valmynd
3. júlí 2019 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Framkvæmd fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga - virkni og valdefling

Skýrsla um framkvæmd fjárhagsaðstoðar til framfærslu samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga var unnin af starfshópi sem félags- og jafnréttismálaráðherra skipaði 14. desember 2017. Tilefnið var meðal annars að ekki var fjallað um fjárhagsaðstoð til framfærslu þegar breytingar á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga tóku gildi haustið 2018.

Starfshópnum var falið að kanna leiðir við framkvæmd fjárhagsaðstoðar til framfærslu sem styðja við virkni og þátttöku sem flestra með valdeflingu og notendasamráð að leiðarljósi. Þá var hópnum falið að leita leiða til að samræma viðmið vegna fjárhæðar fjárhagsaðstoðar til framfærslu, eins og kostur er, milli sveitarfélaga.

Fremst í skýrslunni eru tillögur hópsins. Þá er fjallað um rétt til aðstoðar með vísan til alþjóðasamninga, stjórnarskrár Íslands, laga um félagsþjónustu sveitarfélaga og niðurstaðna dómstóla. Áhersla er lögð á virkniúrræði og samspil félagsþjónustu og annarrar velferðarþjónustu. Eins er gerð grein fyrir helstu atriðum sem hópurinn aflaði frá ýmsum aðilum sem þekkja vel til virkniúrræða, endurhæfingar svo og stöðu og heilsufars þeirra sem fá greidda fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna. Í skýrslunni er einnig fjallað um framkvæmd fjárhagsaðstoðar, reglur sveitarfélaganna og dæmi tekin um vanda sem getur mætt þeim sem fara á milli kerfa.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum