Hoppa yfir valmynd
20. júlí 2019

Sjúkraliði á barnadeild

Áhugasamur og metnaðarfullur sjúkraliði óskast til starfa á barnadeild. Um er að ræða starf í vaktavinnu frá 15. september 2019 eða eftir samkomulagi. Í boði er góð einstaklingshæfð aðlögun undir leiðsögn reyndra sjúkraliða og gott starfsumhverfi. Gott tækifæri til að þróa með sér faglega þekkingu og hæfni í sjálfstæðum vinnubrögðum. Við bjóðum jafnt velkomna sjúkraliða sem búa yfir þekkingu sem og nýútskrifaða sjúkraliða.

Deildin veitir sérhæfða þjónustu í meðferð og umönnun barna og unglinga, frá fæðingu til 18 ára aldurs og fjölskyldna þeirra. Stefna deildarinnar er að veita faglega og fjölskyldumiðaða þjónustu þar sem öryggi, fagmennska og umhyggja er höfð að leiðarljósi. Sjá nánar um deildina á heimasíðu Barnaspítala Hringsins, www.barnaspitali.is

Barnaspítali Hringsins hefur forystu í heilbrigðisþjónustu við börn og unglinga á Íslandi. Þar er veitt fjölbreytileg heilbrigðisþjónusta sem krefst mikillar sérhæfingar.

Helstu verkefni og ábyrgð
» Almenn og sérhæfð umönnun 
» Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
» Skipuleggur og forgangsraðar störfum sínum í samráði við hjúkrunarfræðing

Hæfnikröfur
» Góð samskiptahæfni og sjálfstæð vinnubrögð
» Hæfni og geta til að starfa í teymi
» Faglegur metnaður og áhugi á barnahjúkrun
» Íslenskt sjúkraliðaleyfi

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggir á innsendum gögnum og viðtölum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 60 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 12.08.2019

Nánari upplýsingar veitir
Jóhanna Lilja Hjörleifsdóttir - [email protected] - 824 1202

Landspítali
Barnadeild
Hringbraut
101 Reykjavík

Sækja um starf

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum