Hoppa yfir valmynd
22. ágúst 2019

Eftirlitsdýralæknir á Akureyri

Eftirlitsdýralæknir á Akureyri

50% staða eftirlitsdýralæknis við umdæmisskrifstofu Matvælastofnunar á Akureyri er laus til umsóknar. Aðsetur annars staðar innan umdæmisins en á Akureyri er samkomulagsatriði. 
Helstu verkefni og ábyrgð
Eftirlitsdýralæknir sinnir fyrst og fremst eftirliti samkvæmt gildandi lögum og reglugerðum um dýr og matvæli. 

Helstu verkefni eru:
Eftirlitsstörf á sviði matvæla, dýraheilbrigðis og dýravelferðar
Eftirlit með velferð dýra
Heilbrigðiseftirlit í sláturhúsum

Jafnframt felst í starfinu sýnatökur og samskipti við opinberar stofnanir. 

Hæfnikröfur
Dýralæknismenntun og starfsleyfi sem dýralæknir
Æskilegt er að umsækjandi hafi starfað við opinbert eftirlit
Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi 
Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku 
Hæfni til tjáningar í ræðu og riti ensku
Góð almenn tölvukunnátta

Nánari upplýsingar um starfið
Sótt er um starfið á þjónustugátt MAST á vef MAST www.mast.is og skal starfsferilskrá, prófskírteini og kynningarbréf fylgja umsókn. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafur Jónsson héraðsdýralæknir, [email protected] í síma 530 4800. Umsóknarfrestur er til og með 9. september nk. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Dýralæknafélags Íslands.  

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum