Hoppa yfir valmynd
22. ágúst 2019

Fagstjóri lækninga - Heilsugæslan Mjódd

Fagstjóri lækninga Heilsugæslan Mjódd 

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir laust til umsóknar starf fagstjóra lækninga við Heilsugæsluna Mjódd. Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf sem reynir á frumkvæði, skipulagshæfni og samskiptahæfileika. Starfshlutfall er 100% og verður ráðið í starfið til 5 ára frá og með 1. október nk. eða eftir nánara samkomulagi. 

Heilsugæslan er fyrsti viðkomustaður í heilbrigðisþjónustunni þar sem ólíkum þörfum notenda er mætt og þeim leiðbeint yfir í önnur kerfi heilbrigðisþjónustunnar eftir því sem þörf er á. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur gert breytingu á skipulagi og rekstri heilsugæslustöðva sem miðar að því að auka þjónustu við notendur, nýta betur fjármuni og að bæta vinnuumhverfi starfsmanna.

Til að gera þjónustuna markvissari er lagt upp með teymisvinnu sem grunnstef í starfsemi stöðva, ásamt innleiðingu aðferða straumlínustjórnunar. Þverfagleg teymi heilbrigðisstarfsfólks munu auðvelda stöðvum að taka á flóknum vandamálum með fjölbreyttum úrræðum. Í breyttu skipulagi hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hefur starfsfólk aukið sjálfstæði til að móta starfsemi og til að útfæra þjónustu sem mætir þörfum íbúa og uppfyllir um leið kröfur um árangur samkvæmt mælingum og mati.

Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulag, verkstjórn og samhæfing innan fagsviðs með svæðisstjóra, í samræmi við stefnu og markmið Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
- Er svæðisstjóra innan handar við daglegan rekstur stöðvar og er staðgengill hans
- Innleiðir nýjungar og vinnur að breytingum á starfsemi til hagsbóta fyrir skjólstæðinga stöðvar
- Tekur þátt í gerð, innleiðingu og notkun klínískra leiðbeininga
- Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu
- Tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi
- Hefur umsjón með sérnámslæknum stöðvar, veitir fræðslu til nema, nýliða og starfsmanna fagsviðs í samvinnu við aðra starfsmenn stöðvar 
- Er faglegur yfirmaður á sínu sviði og sinnir klínísku starfi samhliða

Hæfnikröfur
- Sérfræðingur í heimilislækningum
- Reynsla af starfi í heilsugæslu 
- Þekking, reynsla og hæfni á sviði stjórnunar
- Nám í stjórnun æskilegt
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri í starfi
- Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt
- Reynsla af og áhugi á teymisvinnu

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Stéttarfélag er Læknafélag Íslands.

Allar umsóknir verða sendar til stöðunefndar hjá Landlæknisembættinu. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. 

Jafnframt skal fylla út eyðublaðið "Umsókn um læknisstöðu" og setja það í viðhengi. Umsóknareyðublaðið má nálgast á vef Embættis landlæknis (www.landlaeknir.is) undir útgefið efni. 

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. 

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.09.2019

Nánari upplýsingar veitir
Kristín Þorbjörnsdóttir - [email protected] - 513-6000
Sigríður Dóra Magnúsdóttir - [email protected] - 513-5971


Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Mjódd lækningar
Þönglabakka 6
109 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum