Hoppa yfir valmynd
24. ágúst 2019

Yfirlæknir kviðarholsskurðlækninga

Yfirlæknir kviðarholsskurðlækninga á Landspítala

Starf yfirlæknis í kviðarholsskurðlækningum er laust til umsóknar. Starfið er leiðtoga- og stjórnunarstarf sem felur í sér faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og rekstrarábyrgð auk þess sem yfirlæknir gegnir mikilvægu hlutverki sem einn af skurðlæknum sérgreinarinnar.

Leitað er eftir sérfræðilækni með víðtæka reynslu og hæfni til að vera í forystu fyrir þjónustu við sjúklinga, umbóta- og gæðastarfi, öryggismálum og uppbyggingu mannauðs í sérgreininni, í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra og annað samstarfsfólk. Gerð er krafa um helgun í starfi yfirlæknis.
Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. nóvember 2019 eða eftir nánara samkomulagi. Ráðið er í starfið til 5 ára, sbr. 9.gr. laga nr. 40/2007 og stefnu Landspítala í ráðningum stjórnenda. 

Helstu verkefni og ábyrgð
» Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun kviðarholsskurðlækninga við sjúkrahúsið, þ.m.t. kennslu og vísindastarfi, í samráði við framkvæmdastjóra skurðlækningasviðs og framkvæmdastjóra lækninga
» Fjárhagsleg ábyrgð, í samráði við framkvæmdastjóra skurðlækningasviðs
» Starfsmannaábyrgð, ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsmanna á einingunni, í samráði við framkvæmdastjóra skurðlækningasvið
» Klínísk vinna sérfræðilæknis
» Samstarf við aðrar sérgreinar

Hæfnikröfur
» Leiðtogahæfileikar og geta til að leiða umbótastarf og breytingar
» Stjórnunarreynsla og færni í stjórnunarhlutverki, þ.e. faglegri ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagsleg ábyrgð
» Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum
» Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
» Umtalsverð færni og virkni á sviði kviðarholsskurðlækninga
» Reynsla af kennslu og vísindastörfum æskileg
» Íslenskt sérfræðileyfi í kviðarholsskurðlækningum

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Skurðlæknafélag Íslands hafa gert.
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í kjarasamningi lækna og ríkisins 2015.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.

Umsókn fylgi vottfestar upplýsingar um nám, fyrri störf og reynslu af kennslu-, vísinda- og stjórnunarstörfum, ásamt afriti af helstu ritsmíðum sem umsækjandi hefur ritað eða átt þátt í.
Umsókn fylgi einnig kynningarbréf með framtíðarsýn umsækjenda varðandi starfið og sérgreinina auk rökstuðnings fyrir hæfni.

Allar umsóknir eru sendar til stöðunefndar lækna hjá Landlæknisembættinu. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim auk mati stöðunefndar á innsendum umsóknargögnum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

ATH. Fylla þarf út lágmarksupplýsingar í almenna umsókn og senda sem viðhengi en ýtarlegri upplýsingar í umsókn fyrir læknisstöðu, sjá slóð hér fyrir neðan.

Umsókn um læknisstöðu - umsóknareyðublað Embættis landlæknis

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.09.2019

Nánari upplýsingar veitir
Lilja Stefánsdóttir - [email protected] - 824 5222


Landspítali
Skrifstofa skurðlækningasviðs
Hringbraut
101 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum