Hoppa yfir valmynd
14. september 2019

Hjúkrunarfræðingur/ aðstoðardeildarstjóri - hjarta- lungna og augnskurðdeild

Hjúkrunarfræðingur/ aðstoðardeildarstjóri

Á hjarta- lungna og augnskurðdeild 12G Hringbraut er laus til umsóknar staða aðstoðardeildarstjóra. Á deildinni starfa um 50 manns í þverfaglegu teymi og sinna einstaklingum sem farið hafa í aðgerðir vegna sjúkdóma í hjarta og lungum. Einnig sinnir deildin bráðainnlögnum er tengjast brjóstholi og einstaklingum með augnsjúkdóma sem þarfnast innlagnar.

Við leitum að metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi með brennandi áhuga á hjúkrun skurðsjúklinga, stjórnun, ásamt gæða- og umbótastarfi. Starfshlutfall er 80-100% og er starfið laust 1. október 2019 eða eftir samkomulagi. 

Helstu verkefni og ábyrgð
» Aðstoðardeildarstjóri er nánasti samstarfsmaður deildarstjóra og vinnur að skipulagningu á starfsemi deildar í samráði við hann
» Ber ábyrgð á rekstri og mönnun deildar í fjarveru hjúkrunardeildarstjóra
» Er leiðandi í klínísku starfi og framþróun hjúkrunar á deild
» Ber ábyrgð á tilteknum verkefnum sem honum eru falin 
» Er leiðandi í umbótastarfi á deildinni

Hæfnikröfur
» Íslenskt hjúkrunarleyfi
» Faglegur metnaður
» Starfsreynsla í hjúkrun
» Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
» Sjálfstæði í vinnubrögðum
» Framhalds - eða viðbótarmenntun er æskileg, ekki skilyrði
» Stjórnunarþekking og leiðtogahæfni 

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Umsókn fylgi einnig kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið. Öllum umsóknum verður svarað.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum. 

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.09.2019

Nánari upplýsingar veitir
Lilja Ásgeirsdóttir - [email protected] - 824 5546
Heiða Steinunn Ólafsdóttir - [email protected] - 824 8733


Landspítali
Hjarta-, lungna- og augnskurðdeild
Hringbraut
101 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum