Hoppa yfir valmynd
3. október 2019 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Grunnurinn er lagður í leikskólunum

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra ásamt Eyrúnu Ísfold Gísladóttur og Þóru Másdóttur talmeinafræðingum og höfundum Lubba-efnisins. - mynd
„Tungumálið er mikilvægasta verkfærið okkar. Á leikskólastiginu er lagður grunnur að menntun einstaklingsins og við vitum hversu mikilvægur málþroski hvers og eins er fyrir félags- og vitsmunaþroska síðar meir. Við erum stolt af því öfluga starfi sem fram fer í leikskólum hér á landi og sjálf tel ég mikil sóknarfæri felast þar, meðal annars í því að efla málþroska og byrjendalæsi leikskólabarna,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra sem ávarpaði þátttakendur á námskeiði leikskólakennara um hljóðakerfi og hljóðanám í Gerðubergi í morgun.

Fjöldi leikskóla notar hljóðanám með markvissum hætti. Viðfangsefni námskeiðsins í dag var kennsluefni og nálgun sem kennd er við hundinn Lubba en þar er unnið á skapandi hátt með mál og læsi. Höfundar þess efnis eru talmeinafræðingarnir Eyrún Ísfold Gísladóttir og Þóra Másdóttir en þær hafa unnið að útfærslu efnisins og þróun í rúm 10 ár. Góð reynsla hefur verið af notkun þess en efnið hentar breiðum hópi, til dæmis bráðgerum börnum, tvítyngdum sem og börnum sem eiga í erfiðleikum með lestur og ritun.
  • Grunnurinn er lagður í leikskólunum  - mynd úr myndasafni númer 1
  • Grunnurinn er lagður í leikskólunum  - mynd úr myndasafni númer 2
  • Grunnurinn er lagður í leikskólunum  - mynd úr myndasafni númer 3

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum