Hoppa yfir valmynd
18. október 2019 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Höfðingleg gjöf frá Dönum: 135 ára afmæli Listasafns Íslands

Harpa Þórsdóttir safnstjóri Listasafns Íslands, Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Eva Egesborg Hansen sendiherra Danmerkur á Íslandi.    - myndListasafn Íslands
Listasafn Íslands var stofnað þann 16. október árið 1884 og af því tilefni heimsótti Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra safnið í vikunni og kynnti sér starfsemi þess. Í lok heimsóknarinnar tók ráðherra á móti gjöf til íslensku þjóðarinnar en danski sendiherrann á Íslandi, Eva Egesborg Hansen, afhenti ráðherra gjafabréf frá Ingrid Nielsen í Kaupmannahöfn til Listasafns Íslands en gjöfin eru 18 verk eftir alþýðulistamanninn Sölva Helgason.

„Við þökkum kærlega fyrir höfðinglega gjöf og fögnum því að þessi verk Sölva Helgasonar komist í eigu þjóðarinnar. Sólon Íslandus óraði líklega ekki fyrir því að sköpunarkraftur hans og listfengi myndi gleðja svo margar kynslóðir Íslendinga og verða partur af okkar mikilvæga menningararfi,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Föðuramma Ingridar Nielsen eignaðist pappírsverkin eftir Sölva þegar hún vann í verslun Popp kaupmanns á Sauðárkróki snemma á síðustu öld og var það ósk frú Nielsen að verkin yrðu afhent þjóðlistasafni Íslendinga. Það var því einkar viðeigandi að afhendingin færi fram á afmælisdegi Listasafns Íslands. Gjöfin verður til sýnis í anddyri safnsins í nokkra daga en fyrirhugað er að lána Safnasafninu á Svalbarðseyri verkin á sýningu þess á næsta ári þegar 200 ár verða liðin frá fæðingu Sölva Helgasonar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum