Hoppa yfir valmynd
19. október 2019

Forstöðumaður aðfanga og umhverfis

Forstöðumaður aðfanga og umhverfis

Landspítali auglýsir eftir forstöðumanni kjarna aðfanga og umhverfis í samræmi við nýtt skipurit spítalans. Forstöðumaður starfar innan þjónustusviðs og leiðir kjarna aðfanga og umhverfis, en á þeim kjarna eru reknar birgðadreifing, flutningar, eldhús, þvottahús, öryggisgæsla auk fasteignaumsjónar og umhverfismála. Verkefni forstöðumanns er að þróa þjónustu við aðrar einingar spítalans og vinna að samhæfingu við aðra starfsemi innan og utan sviðsins í samræmi við stefnu og starfsáætlun Landspítala.

Forstöðumaður heyrir undir framkvæmdastjóra þjónustusviðs og myndar ásamt öðrum stjórnendum sviðsstjórn og ber með þeim ábyrgð á stefnumótun og rekstri. Jafnframt leiðir forstöðumaður teymi framlínustjórnenda og deildarstjóra, sem hafa það sameiginlega verkefni að samhæfa, efla og þróa þá þjónustu sem veitt er innan kjarnans á öruggan, faglegan og hagkvæman hátt. Starfssvið forstöðumanns fylgir þríþættri ábyrgð stjórnenda á Landspítala, þ.e. fagleg ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagsleg ábyrgð. Forstöðumaður ber ríkar og gagnkvæmar skyldur til samvinnu, samráðs og uppbyggingar teymisvinnu.

Leitað er að kraftmiklum leiðtoga sem hefur brennandi áhuga á að vinna að því að byggja upp sterka liðsheild og að framfylgja stefnu, markmiðasetningu og framtíðarsýn spítalans.

Helstu verkefni og ábyrgð
» Forysta um þjónustu við sjúklinga og starfsemi spítalans
» Forysta um uppbyggingu öryggismenningar, gæða- og umbótastarfs og árangursvísa.
» Uppbygging mannauðs og liðsheildar ásamt ábyrgð á starfsmannamálum
» Ábyrgð á fjármálum og sjálfbærum rekstri kjarnans og þátttaka í gerð fjárhagsáætlunar
» Stefnumótun, markmiðasetning, áætlanagerð og eftirfylgni
» Samhæfing á starfsemi kjarna við önnur svið og kjarna
» Sameiginleg ábyrgð á starfsemi spítalans

Hæfnikröfur
» Háskólapróf auk formlegrar viðbótarmenntunar sem nýtist í starfi er skilyrði
» Stjórnunar- og rekstrarreynsla er kostur
» Brennandi áhugi á uppbyggingu Landspítala og innleiðingu stefnu spítalans
» Reynsla af að leiða umbótastarf, teymisvinnu og breytingastjórnun
» Jákvætt lífsviðhorf, lausnamiðuð nálgun og framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar
» Hæfni til að móta jákvætt vinnuumhverfi og byggja upp teymi
» Mikil hæfni í tjáningu í ræðu og riti, á íslensku og ensku
» Frumkvæði, drifkraftur og stefnumótandi hugsun

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.

Gert er ráð fyrir að ráðningatímabil forstöðumanns hefjist 1. janúar 2020 og er ráðning til fimm ára, sbr. 9. gr. laga nr. 40/2007 og stefnu Landspítala í ráðningum stjórnenda. Mat á umsóknum verður í höndum framkvæmdastjórnar spítalans og forstjóra.

Umsækjendur eru beðnir að skila ítarlegri náms- og starfsferilskrá og kynningarbréfi, er innihaldi framtíðarsýn umsækjanda og rökstuðning fyrir hæfni til að gegna stöðunni.

Landspítali er fjölmennasti vinnustaður landsins með hátt í 6000 starfsmenn. Spítalinn hefur víðtæku hlutverki að gegna sem aðalsjúkrahús landsins og háskólasjúkrahús og veitir bæði almenna og sérhæfða þjónustu, auk þess að vera miðstöð menntunar og rannsókna í heilbrigðisvísindum. Nýtt skipurit spítalans byggist í grunninn á kjörnum, sem mynda þrjú svið. Hlutverk spítalans er þjónusta við sjúklinga, menntun heilbrigðisstétta og heilbrigðisvísindi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, þjónusta, mannauður og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 11.11.2019

Nánari upplýsingar veitir
Jón Hilmar Friðriksson - [email protected] - 825 3586


Landspítali
Skrifstofa forstjóra
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík


Smellið hér til að sækja um starfið


 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum