Hoppa yfir valmynd
19. október 2019

Hjúkrunarfræðingur - Gigtar- og almenn lyflækningadeild

Hjúkrunarfræðingur - Gigtar- og almenn lyflækningadeild - dagdeild

Við viljum ráða hjúkrunarfræðing til starfa á dagdeild lyflækninga B7 í Fossvogi. Starfshlutfall er samkomulag, unnið er í dagvinnu. Æskilegt að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Á gigtar- og almennri lyflækningadeild er starfrækt dagdeild og legudeild. Dagdeildin sinnir sjúklingum frá öllum sérgreinum lyflækninga sem koma til greiningar, rannsókna eða meðferðar en þurfa ekki sólarhringslegu.

Á deildinni starfa um 50 manns í þverfaglegu teymi. Góður starfsandi er ríkjandi og tækifæri eru til að vaxa í starfi. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða aðlögun. Í boði er að taka álagsvaktir á legudeild samhliða dagvinnu. Velkomið að kíkja í heimsókn og fá nánari upplýsingar um starfsemina, áhugasamir hafi samband við Gerði Betu, deildarstjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð
» Veita einstaklingshæfða hjúkrun, ráðgjöf og stuðning til einstaklinga og aðstandenda þeirra sem leita til deildarinnar

Hæfnikröfur
» Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfni
» Sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður
» Hæfni og geta til að vinna í teymi
» Íslenskt hjúkrunarleyfi

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 50 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.11.2019

Nánari upplýsingar veitir
Gerður Beta Jóhannsdóttir - [email protected] - 825 9546


Landspítali
Gigtar- og almenn lyflækningadeild
Fossvogi
108 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum