Hoppa yfir valmynd
19. október 2019

Sjúkraliði/ dagvinna - hjartarannsóknarstofa

Sjúkraliði/ dagvinna á hjartarannsóknarstofu Landspítala

Laust er til umsóknar starf sjúkraliða á hjartarannsóknarstofu Landspítala. Starfshlutfall er 90-100%, unnið er í dagvinnu. Á hjartarannsóknarstofu starfar 20 manna samhentur hópur lífeindafræðinga og sjúkraliða í þverfaglegulegu teymi og í nánu samstarfi við aðra faghóp. 

Við viljum ráða metnaðarfullan sjúkraliða með góða samskiptahæfni og sem á auðvelt með að vinna í teymi. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun. Áhugasamir hafið samband við Jóhönnu, yfirlífeindafræðing.

Helstu verkefni og ábyrgð
» Aðstoð við gangráðseftirlit
» Aðstoð við framkvæmd áreynsluprófa og ásetningu Holtertækja
» Halda utan um tímabókanir, innsláttur gagna í sjúkraskrárkerfi o.fl.
» Taka hjartalínurit

Hæfnikröfur
» Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfileikar
» Sjálfstæði í vinnubrögðum
» Íslenskt sjúkraliðaleyfi

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.

Æskilegt að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 90 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.11.2019

Nánari upplýsingar veitir
Jóhanna S Gunnlaugsdóttir - [email protected] - 825 5898
Þórdís Ágústa Ingólfsdóttir - [email protected] - 824 5480


Landspítali
Hjartarannsóknarstofa
Hringbraut
101 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum