Hoppa yfir valmynd
12. desember 2019

Starfsmenn í aðhlynningu og býtibúr - Blönduós

Heilbrigðisstofnun Norðurlands Blönduósi, starfsmenn í aðhlynningu og býtibúr.

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Blönduósi óskar eftir starfsmönnum í aðhlynningu á hjúkrunarsviði.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Starfshlutfall samkomulag. 

Helstu verkefni og ábyrgð
- Umönnun einstaklinga í samvinnu við fagaðila
- Þátttaka í teymisvinnu
- Umsjón með býtibúri

Hæfnikröfur
- Metnaður og ábyrgð í starfi
- Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélagið Samstaða hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum ef einstaklingar uppfylla ekki framangreind skilyrði.
Ekki er unnt að ráða fólk yngra en 18 ára.

Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.

Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.

Starfshlutfall er 50 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 23.12.2019

Nánari upplýsingar veitir
Ásdís H Arinbjörnsdóttir - [email protected] - 690 3243
Helga M Sigurjónsdóttir - [email protected] - 455 4141


Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Blönduós Hjúkrunardeild
Flúðabakka 2
540 Blönduós


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum