Hoppa yfir valmynd
23. desember 2019 Matvælaráðuneytið

Einfaldara regluverk í nýjum lögum á sviði matvæla

Einföldun regluverks á sviði matvæla er meginstefið í nýju lagafrumvarpi Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sem samþykkt var á Alþingi á dögunum. Með frumvarpinu voru samþykktar breytingar á lögum í því skyni að einfalda regluverk og auka samræmi sem gildir um matvælakeðjuna, í þágu atvinnulífs og almennings. Meðal þess sem er tiltekið í nýju lögunum er að fella brott tiltekna lagabálka og sameina í lög um matvæli auk þess að innleiða reglugerðtengda EES-samningnum sem snýr að því að samræma og einfalda eftirlitskerfi fyrir matvælakeðjuna. 

Auk þess stuðla breytingarnar að enn frekara matvælaöryggi og bættri neytendavernd. Unnið hefur verið að einföldun regluverks í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu síðustu misserin og eru nýju lögin liður í þeirri vinnu. Vinna við framgang aðgerðaáætlunarinnar er í forgangi í ráðuneytinu.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra:

„Þetta er mikið framfaraskref, fyrir bæði neytendur og framleiðendur. Lögin stuðla að skilvirkara, einfaldara og aðgengilegra eftirlitskerfi fyrir matvælakeðjuna.“

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

15. Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum