Heilbrigðisgagnafræðingur - Borgarnes
Heilbrigðisgagnafræðingur Borgarnesi
Heilbrigðisstofnun Vesturlands óskar eftir að ráða Heilbrigðisgagnafræðing í 80% stöðu í dagvinnu. Staðan er laus frá og með 1 mars 2020.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skráning heilbrigðisupplýsinga, úrvinnsla og vistun, umsjón með kóðun sjúkdóma og aðgerða.
Eftirlit með meðferð upplýsinga í samstarfi við aðrar heilbrigðisstéttir.
Skjalastjórnun, sjúklingabókhald, skýrslugerð og gæðaeftirlit.
Ritarastörf fyrir fjölskylduteymi.
Afleysing í móttöku.
Hæfnikröfur
Starfsleyfi frá Embætti landlæknis sem Læknaritari, nú Heilbrigðisgagnafræðingur.
Lögð er áhersla á faglegan metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika.
Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði.
Hæfni og geta til að starfa í teymi.
Íslenskukunnátta áskilin.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu hafa gert.
Sótt er um starfið rafrænt á www.hve.is, undir "laus störf" eða á starfatorg.is. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi.
Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 10.02.2020
Nánari upplýsingar veitir
Linda Kristjánsdóttir - [email protected] - 4321430
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Borgarnes Heilsugæsla Skrifstofa, ritarar og afgreiðsla
Borgarbraut 65
310 Borgarnes