Hoppa yfir valmynd
17. janúar 2020

Sjúkraþjálfari í Heilsugæslu / Hreyfistjóri

Afleysingastaða Sjúkraþjálfara í Heilsugæslu / Hreyfistjóri

Laust er til umsóknar afleysingarstarf sjúkraþjálfara í Heilsugæslu hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands frá og með 1. mars 2020 í eitt ár, eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
Um er að ræða þríþætt starfsvið:

1. Þátttaka í teymisvinnu og móttaka / mat skjólstæðinga í Heilsugæslu.

2. Þátttaka í starfi geðheilsuteymis HSU.

3. Hreyfistjóri, 35% starfshlutfall. Hreyfistjóri tekur á móti skjólstæðingum sem hafa fengið uppáskrifaðan hreyfiseðil frá lækni eða hjúkrunarfræðingi, gerir viðeigandi mælingar, setur upp hreyfiáætlun í samráði við skjólstæðing og fylgir henni eftir. Hreyfistjóri sendir tilvísandi lækni greinargerð þegar tiltekinn tími er liðinn frá því að meðferð hófst og við lok hennar. 

Hæfnikröfur
- Löggilt sjúkraþjálfarapróf
- Íslenskt starfsleyfi landlæknis 
- Þriggja ára starfsreynsla
- Þekking á áhugahvetjandi samtalstækni 
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð íslensku og enskukunnátta
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag sjúkraþjálfara hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. 

Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun og staðfest afrit af opinberu starfsleyfi. 

Starfshlutfall er 60 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.02.2020

Nánari upplýsingar veitir
Gunnhildur A Vilhjálmsdóttir - [email protected] - 432-2000
Sigurður Hjörtur Kristjánsson - [email protected] - 432-2000


Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Sjúkraþjálfun
Árvegi
800 Selfoss


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum