Hoppa yfir valmynd
7. febrúar 2020 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Sigrún Ágústsdóttir skipuð í embætti forstjóra Umhverfisstofnunar

Sigrún Ágústsdóttir hefur verið skipuð forstjóri Umhverfisstofnunar.  - mynd

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur skipað Sigrúnu Ágústsdóttur í embætti forstjóra Umhverfisstofnunar frá og með deginum í dag.

Sigrún lauk cand.jur. prófi frá Háskóla Íslands árið 1995. Hún hefur starfað að umhverfismálum í um 20 ár, þar af sem sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun frá árinu 2008 og var auk þess staðgengill forstjóra áður en hún var settur forstjóri í október sl. Þá starfaði hún sem lögfræðingur hjá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu frá 2000 - 2008. Fyrir þann tíma starfaði hún sem lögfræðingur hjá Fangelsismálastofnun ríkisins.

Sigrún hefur sinnt prófdómarastörfum og stundakennslu við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík meðfram starfi sínu, m.a. í umhverfisrétti og stjórnsýslu umhverfismála. Þá hefur hún verið samræmingaraðili Umhverfisstofnunar gagnvart IMPEL, samtökum umhverfisstofnana í Evrópu.

Eiginmaður Sigrúnar er Davíð Pálsson tæknimaður og eiga þau tvö börn.

Embætti forstjóra Umhverfisstofnunar var auglýst í október sl. og sóttu 12 um stöðuna.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum