Hoppa yfir valmynd
19. febrúar 2020

Lektor í menntunarfræði við kennaradeild

Lektor í menntunarfræði við kennaradeild HA

Háskólinn á Akureyri auglýsir lausa 100% stöðu lektors í menntunarfræði við kennaradeild hug- og félagsvísindasviðs. Helstu verkefni eru kennsla á bakkalár- og meistarastigi og rannsóknir á sviði menntunarfræði/kennslufræði. Næsti yfirmaður er deildarformaður kennaradeildar.
Starfsstöð er á Akureyri.
Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst 2020. Ráðningartími er tímabundinn til fimm ára en viðkomandi getur óskað eftir ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum samkvæmt reglum nr. 258/2016 um störf dómnefndar og ráðningar akademískra starfsmanna við Háskólann á Akureyri. Framgangur í stöðu dósents eða prófessors kemur til greina við ráðningu hafi umsækjandi hæfi til þess að mati dómnefndar.
Við kennaradeild HA er boðið upp á nám í kennarafræði (B.Ed.), meistaranám til kennsluréttinda (M.Ed. og MT) og rannsóknartengt meistaranám (MA) í menntavísindum. Nemendur við deildina eru um 330 og 19 kennarar í 17 stöðugildum.

Helstu verkefni og ábyrgð
Leitað er eftir háskólakennara sem getur kennt námskeið í menntunarfræði/kennslufræði (nám og kennsla). Sérstaklega er leitað eftir einstaklingi með rannsóknaráherslur á sviði kennslufræði. Mikilvægt er að umsækjendur taki virkan þátt í daglegu akademísku samfélagi háskólans og nærsamfélagsins á Norðurlandi.

Hæfnikröfur
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Umsækjandi skal hafa þekkingu og reynslu í samræmi við alþjóðleg viðmið fyrir viðkomandi starfsheiti á fræðasviðinu, staðfest með áliti dómnefndar eða með doktorsprófi frá viðurkenndum háskóla.
- Æskilegt er að umsækjandi hafi leyfisbréf til kennslu. 
- Kennslureynsla á háskólastigi telst æskileg og birtingar á alþjóðlegum, ritrýndum vettvangi eru nauðsynlegar. 
- Krafist er góðrar hæfni í mannlegum samskiptum og skipulagshæfni.
- Við mat á umsóknum er tekið mið af hversu vel viðkomandi uppfyllir þarfir kennaradeildar.
- Gott vald á íslensku og ensku er nauðsynlegt.

Umsókn skal fylgja:
- Greinargóð skýrsla um náms- og starfsferil, fræðistörf og kennslureynslu.
- Staðfest afrit af öllum viðeigandi prófskírteinum.
- Greinargerð um fyrirhugaðar rannsóknaráherslur og kennslusvið ef til ráðningar kæmi.
- Umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf umsækjanda eftir því sem við á.
- Tilnefna skal þrjá meðmælendur, æskilegt er að einn þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi starfi eða fyrra starfi umsækjanda.
- Þær fræðilegu ritsmíðar sem umsækjandi telur sín bestu verk (allt að þremur ritum). Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skal umsækjandi gera grein fyrir framlagi sínu til verksins.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.
Meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðning í starfið er í samræmi við ákvæði laga um háskóla nr. 63/2006, laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, reglur nr. 387/2009 fyrir Háskólann á Akureyri með áorðnum breytingum og reglur nr. 258/2016 um störf dómnefndar og ráðningar akademískra starfsmanna við Háskólann á Akureyri. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið hefur verið tekin.

Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um laus störf.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 13.03.2020

Nánari upplýsingar veitir
Guðmundur Engilbertsson, formaður kennaradeildar, netfang [email protected], sími 4608570. 
Elín Díanna Gunnarsdóttir, sviðsforseti hug- og félagsvísindasviðs, netfang [email protected], sími 4608670.

Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum