Hoppa yfir valmynd
21. febrúar 2020 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Óskað eftir tilnefningum til Kuðungsins

Merki Kuðungsins - mynd

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnanir, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, eru þess verðug að hljóta Kuðunginn fyrir árið 2019. Kuðungurinn verður afhentur í tengslum við Dag umhverfisins 25. apríl.

Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunum. Fyrirtæki og stofnanir geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.

Við mat á viðurkenningarhöfum er horft til eftirfarandi þátta: Umhverfisstjórnunar, innleiðingar nýjunga í umhverfisvernd, losun gróðurhúsalofttegunda, minni efnanotkunar, lágmörkunar úrgangs, mengunarvarna, umhverfisvænni þróun á vöru eða þjónustu, framlags til umhverfismála, samstarfs í umhverfismálum og vinnuumhverfis.

Tillögur skulu berast umhverfis- og auðlindaráðuneytinu eigi síðar en 17. mars næstkomandi, merktar ,,Kuðungurinn", á netfangið [email protected] eða með pósti í umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík.

Á síðasta ári hlaut verslunarkeðjan Krónan viðurkenninguna fyrir eftirtektarverðan árangur í umhverfismálum á árinu 2018.

Upplýsingar um fyrri verðlaunahafa


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum