Hoppa yfir valmynd
3. apríl 2020

Hjúkrunardeildarstjóri speglunardeildar Landspítala

Hjúkrunardeildarstjóri speglunardeildar Landspítala


Leitum eftir kraftmiklum stjórnanda til að leiða og efla starfsemi speglunardeildar Landspítala og byggja upp sterka liðsheild. Speglunareiningin sinnir bæði almennum speglunum en er einnig sú sérhæfðasta á landinu og sinnir því sjúklingum alls staðar að. Á deildinni starfar um 25 manna hópur samhentra starfsmanna, í nánu samstarfi við marga sérfræðinga Landspítala. Starfsstöðvar eru tvær, við Hringbraut þar sem stærri hluti speglana fer fram og í Fossvogi.

Hjúkrunardeildarstjóri er leiðtogi og hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Næsti yfirmaður er forstöðumaður skurðstofa og gjörgæslu.
Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. júní 2020 eða eftir nánara samkomulagi. Ráðið er í starfið til 5 ára, sbr. 9.gr. laga um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007 og stefnu Landspítala í ráðningum stjórnenda.


Helstu verkefni og ábyrgð
» Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun starfseminnar, stuðlar að þekkingarþróun og hvetur til rannsókna og nýtingu rannsókna í nánu samstarfi við aðra stjórnendur
» Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsmanna á deildinni í samráði við mannauðsstjóra og forstöðumann skurðstofa og gjörgæslu
» Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði deildarinnar í samráði við fjármálaráðgjafa og forstöðumann skurðstofa og gjörgæslu
» Ábyrgð á árangri og umbótastarfi, setur markmið um öryggi og gæða- og umbótastarf og tryggir eftirfylgni, í nánu samráði við aðra stjórnendur


Hæfnikröfur
» Íslenskt hjúkrunarleyfi
» Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
» Þekking og reynsla af stjórnun
» Viðbótarmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi
» Þekking og reynsla af öryggis-, gæða- og umbótastarfi 
» Jákvætt lífsviðhorf, lausnamiðuð nálgun og framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar 
» Faglegur metnaður, frumkvæði, drifkraftur og stefnumótandi hugsun


Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.

Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
» Fyrri störf, menntun og hæfni
» Félagsstörf og umsagnaraðila

Nauðsynleg fylgiskjöl:
» Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfi
» Ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið

Umsóknir verða sendar til stöðunefndar hjúkrunarráðs Landspítala. Ákvörðun um ráðningu í starfið byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.


Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 17.04.2020


Nánari upplýsingar veitir
Hlíf Steingrímsdóttir - [email protected] - 824 5286
Elfa Hrönn Guðmundsdóttir - [email protected] - 691 7823



Landspítali
Skrifstofa aðgerðasviðs
Hringbraut
101 Reykjavík


Smellið hér til að sækja um starf

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum