Hoppa yfir valmynd
3. apríl 2020 Matvælaráðuneytið

Samningar fyrir íslenska hestinn undirritaðir

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað samning við félag Hrossabænda, Landsamband hestamannafélaga, Félag tamningamanna og Íslandsstofu um áframhald markaðsverkefnisins Horses of Iceland, til kynningar á íslenska hestinum. Við sama tilefni undirritaði ráðherra samning við Félag hrossabænda og Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum um prófun á forvarnarbóluefni gegn sumarexemi í útfluttum hrossum.
Samningarnir voru undirritaðir við nokkuð sérstakar aðstæður að þessu sinni eða í gegnum fjarfundabúnað þar sem allir staðfestu samninginn með undirritunum sínum. 

Horses of Iceland

Tilgangur markaðsverkefnisins Horses of Iceland er að byggja upp orðspor íslenska hestsins um heim allan til að leggja grunn að aukinni verðmætasköpun og útbreiðslu hestsins á heimsvísu. Um er að ræða samstarf aðila í hestatengdri starfsemi, sem aðilum um heim allan stendur til boða að gerast þátttakendur að. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og Íslandsstofa gerðu með sér samning um verkefnið árið 2016 til fjögurra ára. Samningurinn rann út um áramót, en hefur nú verið framlengdur til 30. júní 2021. Ráðuneytið leggur að hámarki 19.000.000 kr til verkefnisins á umræddu tímabili þar sem fjárframlag sem því var ætlað hefur ekki verið fullnýtt síðustu ár. Þá leggja hagsmunaaðilar til sambærilegt mótframlag. 

Sumarexem í hrossum

Verkefnið felur í sér að hópur af hrossum verða bólusett gegn sumarexemi með aðferð sem þróuð hefur verið á Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum. Eftir bólusetninguna verða hestarnir fluttir á flugusvæði í Sviss til að athuga, við raunaðstæður, hvort bólusetningin ver þá gegn ofnæminu. Gerð verður samanburðarrannsókn á þekktu svæði í Bern í Sviss þar sem sumarexem hefur verið til mikilla óþæginda fyrir hross sem fædd eru á Íslandi.

 

Hér má sjá ráðherra og samningsaðila við undirritun samningsins

Hér má sjá ráðherra og fulltrúa samningsaðila við undirritun samningsins.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

15. Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum