Hoppa yfir valmynd
6. apríl 2020 Forsætisráðuneytið

Fjarfundur forsætisráðherra og forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Ursula Von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins áttu fjarfund í dag þar sem þær ræddu fyrst og fremst um heimsfaraldur COVID-19 og efnahagsleg áhrif hans. Þær fóru yfir efnahagsaðgerðir Evrópusambandsins og árangur þeirra sóttvarnaráðstafana sem gripið hefur verið til. Forsætisráðherra fór yfir stöðu faraldursins á Íslandi, fjölda greininga og smita og helstu áskoranir.

Þá ræddu þær stöðu loftslagsmála, sameiginleg markmið um samdrátt gróðurhúsalofttegunda og mögulegt samstarf um tæknilausnir til að ná kolefnishlutleysi. Þær ræddu aðgerðaáætlun Evrópusambandsins um fjórðu iðnbyltinguna og stöðu kynjajafnréttismála, sérstaklega kynbundið ofbeldi. Að lokum fór forsætisráðherra yfir EES-tengd málefni og mikilvægi náins áframhaldandi samstarfs innan EES-svæðisins.

Fundurinn var haldinn með fjarfundabúnaði og kom í stað fundar sem til stóð að halda í dag í Brussel.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

13. Aðgerðir í loftslagsmálum
7. Sjálfbær orka
5. Jafnrétti kynjanna

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum