Hoppa yfir valmynd
6. apríl 2020

Hjúkrunarfræðingar sumarafleysing

Hjúkrunarfræðingar sumarafleysing


Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Sauðárkróki óskar eftir hjúkrunarfræðingum í sumarafleysingu á sjúkrasviði.
Ráðningartími er samkvæmt samkomulagi. Við erum opin fyrir því að ráða hjúkrunarfræðinga til að vinna styttri lotur, valdar helgar eða í allt sumar. 


Helstu verkefni og ábyrgð
Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar.


Hæfnikröfur
- Fullgilt hjúkrunarpróf og íslenskt starfsleyfi
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og sveigjanleiki
- Starfsreynsla í hjúkrun æskileg


Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum ef einstaklingar uppfylla ekki framangreind skilyrði. 
Öllum umsóknum skal fylgja afrit af prófskírteini, íslenskt hjúkrunarleyfi og náms- og starfsferilskrá.

Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.

Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing


Starfshlutfall er 50 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.04.2020


Nánari upplýsingar veitir
Sigurbjörg Kristr Snjólfsdóttir - [email protected] - 455 4011



Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Sauðárkrókur Sjúkrasvið
Sauðárhæðir
550 Sauðárkrókur



Smellið hér til að sækja um starf

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum