Hoppa yfir valmynd
27. apríl 2020 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á blómum

Með vísan til 65. gr. og 65. gr. A, búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum og til reglugerðar nr. 1076/2019, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutningsmagn blóma sem sótt skal um í stykkjatölu fyrir tímabilið

1. júlí - 31. desember 2020.

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

Tollskrárnr.:

stk.

%

kr./stk.

 

Blómstrandi plöntur með knúppum eða blómum, þó ekki kaktusar:

0602.9091

Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð, þó ekki þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna

01.07.-31.12.20

1.650

30

0

Aðrar:

0602.9093

Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð, þó ekki þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna

01.07.-31.12.20

2.160

30

0

Lifandi:

0603.1400

Tryggðablóm (Chrysanthemums)

01.07.-31.12.20

6.500

30

0

0603.1909

Annars (afskorin blóm)

01.07.-31.12.20

118.750

30

0

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, hverju sinni, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Úthlutun er ekki framseljanleg.

Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, 5. hæð, eða á [email protected] fyrir kl. 16:00 mánudaginn 4. maí 2020.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum