Hoppa yfir valmynd
8. maí 2020 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Mannauðsstjóri til starfa

Svava Þorsteinsdóttir - mynd
Svava Þorsteinsdóttir tekur við nýju starfi mannauðsstjóra mennta- og menningarmálaráðuneytisins í maí. Svava hefur meðal annars starfað sem mannauðsstjóri Lyfju og Formaco og lauk hún MA gráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands árið 2006. Hún er einnig með BSc í hótel,- veitingahúsa- og ferðamálastjórnun frá University of Massachusetts. Sem mannauðsstjóri ráðuneytisins mun Svava vinna náið með forstöðumönnum þeirra 52 stofnana sem undir ráðuneytið heyra og sinna ráðgjöf og aðstoð við þá, auk stuðnings við stjórnendur ráðuneytisins.

Starfið var auglýst þann 8. febrúar sl. en alls sóttu 30 um.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum