Kennari í bifvélavirkjun
Laus er til umsóknar staða kennara í bifvélavirkjun í afleysingar í eitt ár.
Hæfnis- og menntunarkröfur:
Viðkomandi þarf að vera bifvélavirki og hafa leyfisbréf í kennslu.
Umsækjendur greini í umsókn frá menntun, fyrri störfum og öðru því sem telja má að skipti máli.
Laun eru í samræmi við kjarasamning KÍ og stofnanasamning Borgarholtsskóla.
Sakavottorð fylgi umsókn.
Upplýsingar um starf veitir Marín Björk Jónasdóttir, sviðsstjóri iðn- og starfsnáms, [email protected], s: 698-5795.
Á heimasíðu skólans, www.bhs.is, eru upplýsingar um skólann og starfsemi hans.
Umsóknir ásamt fylgigögnum sendist í tölvupósti til Ársæls Guðmundssonar, skólameistara, [email protected] fyrir 8. júní 2020.