Hoppa yfir valmynd
19. júní 2020 Matvælaráðuneytið

40 milljónir til íslenskrar keppnismatreiðslu

 Klúbbur matreiðslumeistara og Íslenska Bocuse d´Or Akademían (f.h.) Frú Eliza Reid, forsetafrú og verndari Kokkalandsliðsins, Andreas Jacobsen, gjaldkeri Klúbbs matreiðslumanna, Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Friðgeir Ingi Eiríksson hjá Íslensku Bocuse d´Or Akademíunni og Fanney Dóra Sigurjónsdóttir, varaformaður Klúbbs matreiðslumeistara - myndGolli

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Klúbbur matreiðslumeistara og Íslenska Bocuse d´Or Akademían, undirrituðu í dag samning um veglegt framlag atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins til keppnismatreiðslu.

Samningurinn er sá fyrsti sinnar tegundar og er samningsfjárhæð samtals 40 milljónir króna á tveggja ára tímabili.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra:

„Íslenskir matreiðslumeistarar hafa verið óþreytandi í að kynna gæði íslensks hráefnis á erlendri grundu og hafa verið í fremstu röð í keppnismatreiðslu. Það er tímabært að styðja vel við bakið á þeim og með þessum samningi verður hægt að lyfta íslenskri keppnismatreiðslu og renna enn betri stoðum undir íslenska matarmenningu. Það er einnig mikilvægt að skapa fyrirmyndir og gera fagið eftirsóknarvert fyrir ungt fólk, stuðla að framþróun og nýsköpun. “

Með samningnum er Klúbbi matreiðslumeistara og Íslensku Bocuse d‘Or Akademíunni falið að vinna að því að kynna íslenskt hráefni á erlendri grund og styrkja ímynd Íslands sem mataráfangastaðar. Styrkhafar munu einnig vinna að því að efla vöruþróun, nýsköpun og fagþekkingu í matvælagreinum. Klúbbur matreiðslumanna og Bocuse d´Or Akademían taka þátt í alþjóðlegum matreiðslukeppnum fyrir hönd Íslands og mun styrkurinn standa straum af þeim kostnaði og er keppendum falið að vekja athygli á íslensku hráefni.

Friðgeir Ingi Eiríksson, hjá Íslensku Bocuse d‘Or Akademíunni:

„Þetta er stór áfangi fyrir íslenska keppnismatreiðslu og mun skapa betra starfsumhverfi fyrir hana, íslenska kokkalandsliðið og Íslensku Bocuse d´Or Akademíuna. Með samningnum er keppnismatreiðslu gefið aukið vægi sem mun skila sér í enn betri kynningu á íslenskum hráefnum og efla matarmenningu hérlendis.“

  •  40 milljónir til íslenskrar keppnismatreiðslu - mynd úr myndasafni númer 1

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

15. Líf á landi
14. Líf í vatni
11. Sjálfbærar borgir og samfélög
9. Nýsköpun og uppbygging
2. Ekkert hungur
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum