Hoppa yfir valmynd
3. júlí 2020

Ljósmóðir - Neskaupstaður - Fæðingardeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands

Ljósmóðir - Neskaupstaður - Fæðingardeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands 

Fjölskyldudeild HSA óskar eftir að ráða sem fyrst ljósmóður til starfa. Starfshlutfall er 70-100% eða samkvæmt samkomulagi. Það er einnig samkomulagsatriði hvernig starfshlutfallið skiptist milli heilsugæslu og fæðingadeildar. Starfið veitist frá 1. september 2020 eða eftir nánara samkomulagi.


Helstu verkefni og ábyrgð
Vaktljósmóðir við fæðingadeild FSN og mæðra og ungbarnavernd við heilsugæslur HSA.


Hæfnikröfur
Íslenskt ljósmæðraleyfi er skilyrði. Íslenskt hjúkrunarleyfi er kostur. 
Lögð er áhersla á metnað í starfi, teymisvinnu, jákvæðni og sveigjanleika. Íslenskukunnátta áskilin. Ökuréttindi eru nauðsynleg. 


Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Ljósmæðrafélag Íslands hafa gert. 
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar www.hsa.is undir flipanum Laus störf. 


Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun og eða notkun rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. 

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað og þar er fæðingardeild HSA. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins. 

HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu. 

Fjölskyldudeild tilheyrir bæði sjúkra og heilsugæslusviði og þar starfa að jafnaði fjórar ljósmæður á vöktum og bakvöktum allan ársins hring. 

Fæðingadeild HSA er ljósmæðrarekin C1 fæðingarstaður þar sem undanfarin ár hafa verið 70-80 fæðingar á ári. Einnig sinna vaktljósmæður bráðatilvikum í barneignaferlinu og sinna fjölskyldum í sængurlegu. 

Ljósmæður Fjölskyldudeildar sinna mæðravernd og ungbarnavernd upp að 9 vikum á heilsugæslum HSA. 
Starfshlutfall er 70 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.07.2020
Nánari upplýsingar veitir
Sigríður Kristinsdóttir - [email protected] - 470-1459 
Oddný Ösp Gísladóttir - [email protected] - 470-1425 & 899-4301



Heilbrigðisstofnun Austurlands
Nesk. Sjúkrah. Legudeild
Mýrargötu 20
740 Neskaupstaður

 

Smellið hér til að sækja um starf

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum