Hoppa yfir valmynd
8. júlí 2020

Kerfisstjóri í Rekstrardeild Upplýsingatæknisviðs

Kerfisstjóri í Rekstrardeild Upplýsingatæknisviðs

Háskóli Íslands leitar að kraftmiklum einstaklingi í fjölbreytt starf í Rekstrardeild Upplýsingatæknisviðs Háskóla Íslands. Um fullt starf er að ræða.


Helstu verkefni og ábyrgð
>>Ber ábyrgð á úrlausn á daglegum tilfallandi verkefnum vegna Office 365.
>>Aðstoð við innleiðingar í Office 365.
>>Dagleg O365 kerfisstjórn.
>>Sharepoint umsýsla.
>>Ráðgjöf og leiðbeiningar í gegnum síma, tölvupóst og heimasíðu. 

Hæfnikröfur
>>Menntun sem nýtist í starfi eða haldbær reynsla af sambærilegu starfi.
>>Góð og yfirgripsmikil þekking á öllum hugbúnaði og vélbúnaði er tengist notendaumhverfi.
>>Reynsla og þekking á rekstri Microsoft 365 umhverfis, Exchange og Sharepoint.
>>Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
>>Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu.
>>Góð enskukunnátta.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn
>>Ferilskrá
>>Bréf þar sem áhuga á starfinu er lýst og fjallað um hvað umsækjandi telur sig geta lagt af mörkum til þess
>>Upplýsingar um 2-3 umsagnaraðila

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans, sjá hér: http://www.hi.is/haskolinn/jafnrettisaaetlun#markmid2.

Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands, sjá hér: https://www.hi.is/haskolinnh/malstefna_haskola_islands.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.07.2020

Nánari upplýsingar veitir
Albert Jakobsson - [email protected] - 525 4754


Háskóli Íslands
Upplýsingatæknisvið
Neshaga 16
107 Reykjavík


Smellið hér til að sækja um starf




Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum