Hoppa yfir valmynd
30. júlí 2020

Tvær stöður lögreglufulltrúa á rannsóknarsviði

Við embætti héraðssaksóknara eru lausar til umsóknar tvær stöður lögreglufulltrúa á rannsóknarsviði embættisins sem m.a. fer með rannsóknir á sviði fjármuna-, efnahags- og skattalagabrota. Skipað verður í aðra stöðuna frá og með 1. október n.k. en sett í hina stöðuna til reynslu frá sama tíma í tólf mánuði með möguleika á skipun í framhaldinu. 

Um verkefni héraðssaksóknara er vísað til heimasíðu embættisins; www.hersak.is.

Hæfnis- og menntunarkröfur
Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins/diplómanámi í lögreglufræðum. 
Menntun og/eða reynsla við rannsókn sakamála. 
Reynsla af rannsóknum fjármuna-, efnahags- og skattalagabrota er kostur.
Góð greiningarhæfni, frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi.
Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og samvinnufærni.
Nákvæmni og ögun í vinnubrögðum.
Mjög góð tölvukunnátta er nauðsynleg, sérstaklega í excel og upplýsinga- og málaskrárkerfum lögreglu og ákæruvalds.
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu sem rituðu máli er áskilin.

Með umsókninni skulu fylgja eftirfarandi upplýsingar eftir því sem við á:
Reynsla af störfum sem nýtist í framangreint starf.
Upplýsingar um almenna og sérstaka starfshæfni.
Upplýsingar sem lúta að andlegu atgervi, áræði, mannlegum samskiptum og sjálfstæði.
Upplýsingar um tvo núverandi eða fyrrverandi samstarfsmenn/yfirmenn sem veitt geta upplýsingar um störf, samstarfshæfni og aðra hæfni umsækjanda.
Aðrar upplýsingar sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skipta fyrir starfið.
Með umsókn skulu fylgja afrit af viðeigandi prófskírteinum.

Með vísan til 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996 má engan ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Starfshlutfall er 100%. 

Konur jafnt sem karlar eru hvött til þess að sækja um.

Umsókn skal hafa borist eigi síðar en 24. ágúst 2020 og skal umsókn berast embætti héraðssaksóknara, Skúlagötu 17, 101 Reykjavík. Einnig má senda umsókn með tölvupósti á netfangið [email protected] og skal pósturinn merktur „Umsókn um stöðu lögreglufulltrúa“. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Athygli er vakin á því að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsækjendum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Embætti héraðssaksóknara áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Nánari upplýsingar veitir Sveinn Ingiberg Magnússon, yfirlögregluþjónn, í síma 444-0150.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum