Hoppa yfir valmynd
7. ágúst 2020

Móttökuritari - Heilsugæslan Miðbæ

Móttökuritari - Heilsugæslan Miðbæ


Laust er til umsóknar 80% ótímabundið starf móttökuritara við Heilsugæsluna Miðbæ. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. september eða eftir nánara samkomulagi.

Á heilsugæslustöðinni eru starfandi sérfræðingar í heimilislækningum ásamt sérnámslæknum, sálfræðingi, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, hreyfistjóra og riturum. Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).


Helstu verkefni og ábyrgð
- Símsvörun, bókanir og móttaka skjólstæðinga
- Uppgjör í lok dags
- Móttaka tímapantana í afgreiðslu
- Almenn upplýsingagjöf um starfsemi stöðvarinnar
- Flokkun á pósti og rafrænum sendingum ásamt skönnun og frágangi gagna 
- Þátttaka í símsvörun í lyfjasíma


Hæfnikröfur
- Nám í heilbirgðisgagnafræði og/eða nám sem nýtist í starfi
- Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Jákvæðni og rík þjónustulund 
- Þekking og reynsla af Sögukerfi æskileg
- Góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
- Góð almenn enskukunnátta æskileg


Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg náms-og starfsferilskrá og staðfestar upplýsingar um menntun. 

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum.


Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 20.08.2020


Nánari upplýsingar veitir
Hörður Björnsson - [email protected] - 513-5950
Aðalbjörg Jóna Björnsdóttir - [email protected] - 513-5950



Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Miðbæ
Vesturgötu 7
107 Reykjavík


Smellið hér til að sækja um starf


 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum