Hoppa yfir valmynd
7. ágúst 2020

Móttökuritari

Móttökuritari


Laust er til umsóknar 50% starf móttökuritara við Heilbrigðisstofnun Suðurlands Laugarási. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.


Helstu verkefni og ábyrgð
Móttaka, afgreiðsla og samskipti við skjólstæðinga. Símsvörun, ýmiss konar umsýsla og skráning gagna auk samskipta við aðrar deildir HSU.


Hæfnikröfur
Stúdentspróf eða sambærileg menntun æskilegt.
Starfið krefst hæfni og lipurðar í samskiptum, trúmennsku og nákvæmni í vinnubrögðum. 
Viðkomandi þarf að hafa góð tök á vinnu við tölvur.
Viðkomandi þarf að hafa got vald á íslensku máli og þarf að geta átt tjáskipti á ensku.


Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi hafa gert.
Um er að ræða dagvinnu
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til þess að sækja um starfið

Sækja skal um stöðuna á www.hsu.is undir laus störf. 

Náms- og starfsferilskrá fylgi umsókn.


Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 17.08.2020


Nánari upplýsingar veitir
Jóhanna Valgeirsdóttir - [email protected] - 432-2770



Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Laugarási móttaka/læknaritun
Árvegi
800 Selfoss



Smellið hér til að sækja um starf

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum