Hoppa yfir valmynd
22. september 2020

Yfirlæknir í barna- og unglingageðlækningum

Yfirlæknir í barna- og unglingageðlækningum


Laus er til umsóknar staða yfirlæknis í barna- og unglingageðlækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri. 
Um er að ræða 50 - 100% starf en hlutastarf kemur vel til greina. Möguleiki er að sinna hluta starfsins í fjarvinnu eða gegnum fjarfundabúnað. Staðan veitist frá 01.11.2020 eða eftir nánara samkomulagi.
Næsti yfirmaður er Andrea Andrésdóttir, forstöðulæknir barnalækninga.

Sjúkrahúsið á Akureyri er kennslusjúkrahús sem veitir almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu. Áhersla er lögð á bráðaþjónustu og helstu sérgreinameðferðir. 


Helstu verkefni og ábyrgð
Yfirlæknir ber faglega og stjórnunarlega ábyrgð innan síns sérsviðs. 
Starfið er unnið í dagvinnu og því fylgir þátttaka í kennslu nema og heilbrigðisstétta, þjálfun aðstoðar- og deildarlækna og þátttaka í gæðastarfi.
Starfið er teymisstarf í BUG teymi sjúkrahússins. Í því felst greining og meðferð geðsjúkdóma og hegðunarraskana hjá börnum og unglingum auk þróunarvinnu við teymið, þróun samstarfs við aðrar einingar innan SAk og aðrar heilbrigðisstofnanir á upptökusvæði sjúkrahússins. Samstarf er við BUGL. 
Forstöðulæknir getur falið viðkomandi yfirlækni starfsbundna þætti í samræmi við ákvörðun framkvæmdastjórnar um áherslur í starfi stofnunarinnar.


Hæfnikröfur
Íslenskt lækningarleyfi og fullgild sérfræðiréttindi í barna- og unglingageðlækningum.
Leiðtogahæfni og geta til að hvetja aðra til árangurs.
Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi.
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og miðlun upplýsinga.


Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám, fyrri störf, reynslu af stjórnunarstörfum ásamt upplýsingum um fræðilegar rannsóknir og ritstörf, auk kennslustarfa eftir því sem við á.
Stöðunefnd lækna, sbr. 35. gr. laga um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007, metur hæfni umsækjenda.
Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu á þeim, innsendum gögnum og umsögn stöðunefndar.
ATH. Fylla þarf út lágmarksupplýsingar á almenna umsókn og setja viðhengi, en ýtarlegri upplýsingar í umsókn fyrir læknisstöðu, sjá slóð hér fyrir neðan. 
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins. Sjúkrahúsið á Akureyri er reyklaus vinnustaður.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi.
Áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir. 
Umsókn um læknisstöðu - umsóknareyðublað Embættis landlæknis


Starfshlutfall er 50 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 19.10.2020


Nánari upplýsingar veitir
Andrea Elísabet Andrésdóttir - [email protected] - 463-0100
Alice Harpa Björgvinsdóttir - [email protected] - 463-0100



Sjúkrahúsið á Akureyri
Barna- og unglingageðlækningar
Eyrarlandsvegi
600 Akureyri


Smellið hér til að sækja um starf

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum