Hoppa yfir valmynd
30. október 2020 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Ferðaþjónustufyrirtæki fengið 52% allra stuðningslána

Stuðningslán hafa einkum verið veitt til fyrirtækja í ferðaþjónustu og hafa þau fengið 52% allra stuðningslána. Þetta er meðal upplýsinga sem fram koma í samantekt Seðlabanka Íslands til fjármála- og efnahagsráðuneytisins um nýtingu úrræðisins.

Stuðningslán eru hluti af efnahagsaðgerðum stjórnvalda gegn neikvæðum efnahagsáhrifum Covid-19. Stuðningslán eru rekstrarlán með ríkisábyrgð sem veitt eru til þeirra fyrirtækja sem orðið hafa fyrir mestu tekjufalli. Markmið stuðningslána er að vinna gegn tímabundnum lausafjárvanda smærri fyrirtækja sem leitt gæti til enn frekari efnahagssamdráttar. Stuðningslán með fullri ríkisábyrgð nema að hámarki 10 milljónum en lán með 85% ríkisábyrgð geta numið allt að 40 milljónum á fyrirtæki.

Í lok september höfðu verið veitt 654 stuðningslán til fyrirtækja, 592 með fullri ríkisábyrgð og 62 með ríkisábyrgð á 85% lánsfjárhæðarinnar og nemur heildarábyrgð ríkissjóðs rúmlega 5,0 mö.kr, að því er fram kemur í samantekt Seðlabankans. Langstærstur hluti lánanna hefur farið til lítilla fyrirtækja, þ.e. fyrirtækja með starfsmannafjölda á bilinu 1-10. Meðalfjárhæð lána hefur verið um 8 m.kr.

Auk ferðaþjónustu, sem mest hefur nýtt úrræðið, hafa 27% af stuðningslána farið til fyrirtækja í þjónustu eins og veitingarekstri. Þessar tvær atvinnugreinar hafa enda orðið fyrir hvað mestum áhrifum vegna heimsfaraldurs Covid-19.

Stuðningslán eru ekki stórt hlutfall af heildarskuldsetningu fyrirtækja í ferðaþjónustu sem bendir til þess að fyrirtæki í greininni hafi verið skuldsett fyrir áhrif Covid-19.
Af 654 lánum sem veitt höfðu verið í lok september fór 38% til fyrirtækja utan höfuðborgarsvæðisins.

Hægt er að sækja um stuðningslán út árið 2020 á Ísland.is 

 
 
Atvinnustarfaflokkun Fjöldi Hlutfall af heild Fjárhæð (m.kr.) Meðal-
fjárhæð (m.kr.)
Iðnaður 40 6,1% 401 10,0
Byggingastarfsemi og mannvirkjagerð 16 2,4% 62 3,9
Ferðaþjónusta 338 51,7% 2.885 8,5
Landbúnaður 4 0,6% 29 7,2
Samgöngur og flutningar 4 0,6% 17 4,3
Sjávarútvegur 7 1,1% 40 5,7
Verslun 61 9,3% 445 7,3
Þjónusta 177 27,1% 1.247 7,0
Óflokkað/annað 7 1,1% 65 9,3
Stuðningslán alls 654   5.191 7,9

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum