Hoppa yfir valmynd
9. nóvember 2020 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra opnar Heimsþing kvenleiðtoga

Katrín Jakobsdóttir í umræðunum á Heimsþinginu.  - mynd

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra opnaði Heimsþing kvenleiðtoga í Hörpu í dag. Forsætisráðherra bauð kvenleiðtoga velkomna sem allar taka þátt rafrænt að þessu sinni. Að loknu opnunarávarpi tók forsætisráðherra þátt í umræðum um kyndbundið ofbeldi, áhrifamátt kvenna í COVID-19 faraldrinum og áhrif hans á jafnréttismál í alþjóðlegu samhengi. Aðrir þátttakendur í umræðunum voru þær Helen Clark, fyrrverandi forsætisráðherra Nýja Sjálands sem stýrði umræðunum, Phumzile Mlambo-Ngcuka framkvæmdastjóri UN Women og Amanda Nguyen, stofnandi og framkvæmdastjóri mannréttindasamtakanna Rise.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra:

„Það er ánægjulegt að hægt hafi verið að halda Heimsþing kvenleiðtoga með rafrænum hætti í ár, en sjaldan hefur verið mikilvægara og meira aðkallandi að ræða jafnréttismál í víðum skilningi og þvert á landamæri. Við sjáum bakslag í jafnréttismálum um allan heim. COVID-19 hefur aukið þetta bakslag eins og sést á auknu heimilisofbeldi og kynbundnu ofbeldi. Auk þess sjáum við að konur taka á sig auknar byrðar vegna áhrifa faraldursins. Við sem sitjum við stjórnvölinn þurfum að horfast í augu við þessa þróun og setja jafnréttismálin í forgang í öllum okkar aðgerðum þegar við byggjum upp samfélögin okkar eftir þennan faraldur.“

Heimsþing kvenleiðtoga, Reykjavík Global Forum - Women Leaders, stendur yfir dagana 9. til 11. nóvember. Heimsþingið er nú haldið í þriðja sinn og að því standa alþjóðlegu þingkvennasamtökin Women Poltical Leaders (WPL) í samstarfi við ríkisstjórn Íslands og Alþingi með þátttöku fjölda íslenskra og alþjóðlegra samstarfsaðila. Heimsþing kvenleiðtoga fer fram undir kjörorðinu „Power together“ og Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands er sérstakur verndari þess.  Heimsþingið fer fram rafrænt og um 700 kvenleiðtogar frá um 120 löndum taka þátt í þinginu.

Heimsmarkmiðin

5. Jafnrétti kynjanna

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum