Hoppa yfir valmynd
10. nóvember 2020 Utanríkisráðuneytið

Opinn fundur utanríkisráðherra um viðskiptamál og stuðning við atvinnulíf í heimsfaraldri

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra - myndHaraldur Guðjónsson

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra efnir til opins fjarfundar um viðskiptamál og stuðning við atvinnulíf, í samvinnu við Íslandsstofu og Samtök atvinnulífsins, fimmtudaginn 12. nóvember klukkan 12:00 til 13:00.

Á fundinum verður m.a. fjallað um aðgerðir til að styðja við íslenskt atvinnulíf á tímum Covid-19 heimsfaraldursins, sem ráðist hefur verið í á grundvelli skýrslunnar Saman á útivelli. Er þar m.a. um að ræða nýstofnaða viðskiptavakt, sólarhringsvakt fyrir íslenskan útflutning þar sem fyrirtæki geta leitað til utanríkisþjónustunnar komi upp neyðartilvik utan almenns afgreiðslutíma. Einnig verður fjallað um Þjónustuborð atvinnulífsins sem nú er unnið að því að setja á fót í samstarfi við Íslandsstofu. Markmið Þjónustuborðsins er m.a. að efla þátt atvinnulífsins í þróunarsamvinnu. Þar mun atvinnulífið geta sótt upplýsingar um fjölþjóðlega sjóði, sem koma að fjármögnun þróunarverkefna og sem bæta kjör fólks í þróunarlöndum og víðar. Þá verður fjallað um Samstarfssjóð ráðuneytisins um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem auglýsti sína fjórðu úthlutun á dögunum. Einnig verða til umræðu möguleikar fyrir íslensk fyrirtæki í tengslum við þróunarsamvinnu.

Auk utanríkisráðherra munu Bergþóra Halldórsdóttir, forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Íslandsstofu, og Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins opna umræðurnar.

Fundurinn mun fara fram á forritinu Microsoft Teams. Tekið er á móti skráningum hér.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

8. Góð atvinna og hagvöxtur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum