Hoppa yfir valmynd
4. desember 2020 Utanríkisráðuneytið

UNICEF kallar eftir hærri framlögum til neyðarhjálpar en áður

Ljósmynd: UNICEF - mynd

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) kallar eftir 6,4 milljörðum Bandaríkjadala til að sinna brýnni neyð 300 milljóna manna, þar af 190 milljóna barna, á næsta ári. UNICEF hefur aldrei áður óskað eftir hærri framlögum til neyðarhjálpar og segir fjárþörfina hafa vaxið um 35 prósent milli ára.

„Þegar hrikalegur heimsfaraldur geisar á sama tíma og stríðsátök, loftslagsbreytingar, aðrar hörmungar og uppflosnun geta afleiðingarnar fyrir börn verið skelfilegar,“ segir Henrietta Fore framkvæmdastjóri UNICEF. „Í dag stöndum við frammi fyrir því að verja rétt barna á neyðartímum þar sem COVID-19 og önnur óáran sameinast um að svipta börn heilsu og vellíðan.“

Hún segir að þetta fordæmalausa ástand krefjist ámóta fordæmalausra viðbragða. „Við erum að hvetja styðjendur til að ganga til liðs við okkur svo við getum saman hjálpað börnum heimsins að komast í gegnum þessa myrkustu tíma og koma í veg fyrir týnda kynslóð.“

UNICEF bendir meðal annars á að bólusetningar barna hafi riðlast í rúmlega sextíu þjóðríkjum, hartnær 250 milljónir barna víðs vegar um heiminn séu enn utan skóla vegna farsóttarinnar, lífsnauðsynleg þjónusta hafi liðið fyrir efnahagslegan samdrátt í mörgum ríkjum, víða eigi fjölskyldur í erfiðleikum með að ná endum saman fjárhagslega og aukin hætta sé á heimilis- og kynbundnu ofbeldi. Þá hafi stríðsátök blossað upp á nýjum stöðum, meðal annars í Tigray héraði í Eþíópíu og Cabo Delgado í Mósambík.

Kórónuveiran hefur einnig gert ástandið verra í heimshlutum þar sem neyð hefur ríkt um árabil eins og í Sýrlandi, Jemen, Afganistan, Bangladess, Búrkina Fasó, Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, Líbíu, Suður-Súdan, Úkraínu og Venesúela. Hörmungum af völdum loftslagsbreytinga fjölgi hratt og feli í sér ógn um matarskort, vatnsskort og leiði til þess að fólk flýr heimili sín með aukinni hættu á átökum og lýðheilsubresti.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

1 Engin fátækt
2. Ekkert hungur
3. Heilsa og vellíðan
4. Menntun fyrir öll
6. Hreint vatn og hreint
16. Friður og réttlæti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum