Hoppa yfir valmynd
13. janúar 2021 Dómsmálaráðuneytið

Skipun í embætti fjögurra héraðsdómara

Hulda Árnadóttir, Arnbjörg Sigurðardóttir, Björn L. Bergsson og Jóhannes Rúnar Jóhannsson   - mynd

Dómsmálaráðherra hefur skipað Björn L. Bergsson og Jóhannes Rúnar Jóhannsson í embætti dómara með fyrsta starfsvettvang hjá Héraðsdómi Reykjavíkur frá 14. janúar 2021. Þá hefur dómsmálaráðherra skipað Arnbjörgu Sigurðardóttur í embætti dómara með fyrsta starfsvettvang hjá Héraðsdómi Norðurlands eystra frá 14. janúar 2021 og Huldu Árnadóttur í embætti dómara með fyrsta starfsvettvang hjá Héraðsdómi Reykjaness frá 19. janúar 2021.

Arnbjörg Sigurðardóttir lauk embættisprófi frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2004 og öðlaðist réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi árið 2007 og síðar fyrir Hæstarétti Íslands árið 2013. Hún starfaði sem aðstoðarmaður héraðsdómara árin 2005-2007 en frá þeim tíma og til ársins 2018 sem lögmaður. Árið 2018 tók hún að nýju við starfi aðstoðarmanns héraðsdómara og hefur gegnt því síðan. Þá hefur Arnbjörg gegnt ýmsum öðrum störfum, s.s. setu í kærunefndum fjöleignahúsarmála og húsaleigumála og síðar kærunefndar húsamála, auk þess sem hún hefur komið að kennslu í lögfræði á háskólastigi.

Björn L. Bergsson lauk embættisprófi í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1990 og öðlaðist réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi árið 1992 og síðar fyrir Hæstarétti Íslands árið 1999. Hann starfaði sem lögmaður frá árinu 1999 til ársins 2017 en það ár tók hann við starfi skrifstofustjóra Landsréttar sem hann hefur gegnt síðan. Þá hefur Björn gegnt ýmsum öðrum störfum, s.s. setu í kærunefnd jafnréttismála og endurupptökunefnd, auk þess sem hann hefur komið að kennslu í lögfræði á háskólastigi.

Hulda Árnadóttir lauk embættisprófi í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2001 og framhaldsnámi í lögfræði frá Bristol-háskóla árið 2006. Hún öðlaðist réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi árið 2003 og síðar fyrir Hæstarétti Íslands árið 2018. Árin 2001 – 2005 starfaði hún sem lögfræðingur hjá óbyggðanefnd en frá þeim tíma sem lögmaður. Þá hefur Hulda gegnt ýmsum öðrum störfum, s.s. setu í fjölmiðlanefnd og yfirfasteignamatsnefnd, auk þess sem hún hefur komið að kennslu í lögfræði á háskólastigi.

Jóhannes Rúnar Jóhannsson lauk embættisprófi í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1993 og meistaraprófi á sviði stjórnunar og rekstrar frá Cambridge-háskóla árið 2019. Hann öðlaðist réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi ári 1995 og síðar fyrir Hæstarétti Íslands árið 2002. Hann starfaði sem fulltrúi hjá embætti ríkissaksóknara frá árinu 1993 - 1994 en frá þeim tíma sem lögmaður. Þá hefur Jóhannes gegnt ýmsum öðrum störfum, s.s. setu í skilanefnd og slitastjórn Kaupþings banka og setu í stjórn Arion banka, auk þess sem hann hefur um langt skeið komið að kennslu í lögfræði á háskólastigi

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum