Hoppa yfir valmynd
15. janúar 2021 Innviðaráðuneytið

Framlög til að tryggja lágmarksflug til og frá landinu vegna Covid-19 námu 350 milljónum króna árið 2020

Keflavíkurflugvöllur - mynd

Heildarframlög til að tryggja lágmarks flugsamgöngur til og frá landinu vegna Covid-19 faraldursins námu tæplega 350 milljónum króna árið 2020. Um þessi fjárframlög gerði samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið nokkra aðskilda samninga við Icelandair yfir árið. Samningur, sem samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytið gerði við Icelandair þann 17. maí, heimilaði að heildarkostnaður vegna hans gæti að hámarki numið 500 milljónum kr. Ekki reyndist nauðsynlegt að nýta alla þá fjárhæð en allar tekjur flugfélagsins af flugum lækkuðu greiðslur.

Markmið samninganna hefur verið að tryggja mikilvæga farþega- og fraktflutninga til og frá landinu. Í upphafi var það ennfremur gert til að tryggja að íslenskir ríkisborgarar, sem staddir voru erlendis, gætu fundið sér leið heim í upphafi faraldursins. 

Fyrsti samningurinn var undirritaður í lok mars og gilti frá 27. mars til 15. apríl. Um var að ræða flug til Boston annars vegar og London og Stokkhólms hins vegar. Annar samningur var gerður í beinu framhaldi um flug til sömu áfangastaða. Sá gilti til 5. maí en var framlendur til 16. maí.

Þriðji samningurinn gilti frá 17. maí til 27. júní og tók áfram til áfangastaðanna þriggja. Hann var gerður að undangenginni auglýsingu eftir tilboðum á evrópska útboðsvefnum TED (Tenders Electronic Daily). Icelandair var eina flugfélagið sem gerði tilboð. 

Í þeim samningi var kveðið á um að hægt yrði að framlengja hann til eins eða fleiri af áfangastöðunum. Endurnýjunarákvæðið var nýtt frá og með 27. júní en aðeins vegna flugs til Boston. Frá þeim tíma hafa samningar eingöngu gilt um lágmarksflug til Boston. 

Nýr viðauki var gerður við samninginn í september vegna flugs til Boston út nóvember. Loks var samningurinn framlengdur í lok nóvember til að tryggja lágmarksflug til Boston út árið. Ráðuneytið gerði sérstakan viðaukasamning við Icelandair vegna flugs til Alicante í apríl að undirlagi utanríkisráðuneytisins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum