Hoppa yfir valmynd
15. janúar 2021 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til æskulýðsfélaga vegna áhrifa COVID-19

Sértækar aðgerðir til þess að styðja við starf æskulýðsfélaga sem rakast hefur verulega vegna afleiðinga sóttvarnaráðstafana COVID-19 frá 1. júní sl. Til úthlutunar eru alls 50 milljónir kr. 

Skilyrði fyrir styrkveitingu.

Um er að ræða styrkveitingu vegna tekjutaps þar sem hætt hefur verið við viðburði, mót eða félög hafa þurft að skerða starfsemi vegna samkomubanns. Sýna þarf fram á að tekjutapið hafi haft veruleg neikvæð áhrif á afkomu félagsins.  
 
Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi.

  • Eyðublöð má finna á eyðublaðavef Stjórnarráðsins. 
  • Sækja þarf um aðgang að umsóknavef ráðuneytisins. Aðgengi er einungis gefið á kennitölur og er lykilorð sent til viðkomandi á netfang sem gefið er upp við nýskráningu.
  • Lykilorðinu má breyta eftir innskráningu með því að opna Mínar stillingar.
  • Umsækjendur skrá sig inn með kennitölu og lykilorði og velja mennta- og menningarmálaráðuneytið undir flipanum Umsóknir. Svæði merkt rauðri stjörnu verður að fylla út. Umsækjendur geta fylgst með afgreiðslu umsókna sinna með því að skrá sig inn á umsóknavefinn.

    Nánari upplýsingar veitir Valgerður Þórunn Bjarnadóttir sérfræðingur á skóla-, íþrótta- og æskulýðsmála, s. 545 9500 [email protected].

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum