Hoppa yfir valmynd
26. febrúar 2021 Forsætisráðuneytið

Upplýsingar úr málaskrám ráðuneyta birtar opinberlega

Ráðuneyti í Stjórnarráði Íslands birta í dag í fyrsta sinn opinberlega upplýsingar úr málaskrám sínum. Skyldu til þessarar birtingar var komið á með breytingu á upplýsingalögum árið 2019 en umrætt ákvæði tók gildi um síðustu áramót.

Á vef Stjórnarráðsins birtast nú upplýsingar um mál sem skráð voru í málaskrá ráðuneytanna í janúar sl. en samkvæmt lögunum ber að birta lista yfir mál í næsta mánuði eftir að þau eru stofnuð.

Birting upplýsinga úr málaskrám ráðuneyta er liður í vinnu stjórnvalda við að auka upplýsingafrelsi og gagnsæi í stjórnsýslunni.

 

Lög um breytingu á upplýsingalögum, nr. 140/2012 (útvíkkun gildissviðs o.fl.), samþykkt 11. júní 2019.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum