Hoppa yfir valmynd
23. apríl 2021 Utanríkisráðuneytið

Sýrland: Bóluefnin ljós í myrkri eftir áratuga stríð

Ljósmyndir: UNICEF - mynd

„Bóluefnin eru ljós í myrkrinu fyrir íbúa Sýrlands. Þau munu gera heilbrigðisstarfsfólki kleift að halda áfram að veita lífsnauðsynlega aðstoð í landi þar sem heilbrigðiskerfið er að hruni komið eftir áratuga átök,“ segir Ted Chaiban, svæðisstjóri UNICEF í Miðausturlöndum. Sýrland fékk i gær afhenta fyrstu skammtana af bóluefnum gegn kórónaveirunni. Um er að ræða bóluefni á vegum COVAX-samstarfsins - samstarfi 192 landa sem tryggja á jafna dreifingu bólu­efn­is gegn kórónaveirunni meðal efnaminni ríkja heims­ins.

Í þessari fyrstu úthlutun fékk Sýrland 256.800 skammta af COVID-19 bóluefni en fleiri skammtar væntanlegir á næstu vikum. Þessir fyrstu skammtar verða gefnir heilbrigðisstarfsfólki í framlínu, þar á meðal í norðurhluta landsins þar sem átök geisa enn og fjöldi fjölskyldna er á vergangi.

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, gegnir lykilhlutverki í COVAX-samstarfinu og leiðir innkaup og afhendingu á bóluefnunum til yfir 90 lág- og millitekjuríkja. COVAX-samstarfið vinnur bæði með stjórnvöldum og framleiðendum til að tryggja sanngjarnan aðgang að bóluefnum meðal ríkja heimsins. COVAX-samstarfið gengur út á að tryggja jafnan aðgang að bóluefnum fyrir öll lönd í heiminum og markmiðið er að tryggja tvo milljarða skammta af bóluefnum fyrir lok þessa árs. UNICEF hefur í áratugi verið leiðandi í bólusetningum og nýtir nú sérþekkingu sína til að takast á við þetta sögulega verkefni.

Skráð COVID-19 tilfelli í Sýrlandi eru nú 51.580 en líklega er smitaðir mun fleiri. Átök hafa geisað í landinu í rúman áratug og búnaður og aðstaða til skimana er mjög takmarkaður. Afhending bóluefnanna er því mikilvægur liður í að hefta útbreiðslu veirunnar í landinu en heilbrigðisstarfsfólk landsins þarf mun meiri stuðning til þess að geta haldið áfram að hjálpa þeim mikla fjölda fólks sem er í viðkvæmri stöðu. Eins þarf að tryggja bóluefni fyrir elda fólk og áhættuhópa sem allra fyrst.

  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
16. Friður og réttlæti
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum