Hoppa yfir valmynd
7. september 2021 Forsætisráðuneytið

Skýrsla starfshóps um endurmat á störfum kvenna í Samráðsgátt

Skýrsla starfshóps Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, um endurmat á störfum kvenna hefur verið lögð fram til opin samráðs í Samráðsgátt stjórnvalda. Hópurinn var skipaður 1. desember 2020 í kjölfar yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar í tengslum við gerð kjarasamninga milli ríkis og sveitarfélaga og aðildarfélaga BSRB í mars 2020. Þar lýsti ríkisstjórnin því yfir að sett yrði af stað vinna við endurmat á störfum kvenna og starfshópi yrði falið að leggja fram tillögur að aðgerðum til að útrýma launamun sem stafar af kynskiptum vinnumarkaði. Aðgerðirnar skyldu hafa að leiðarljósi að leiðrétta kerfisbundið vanmat á störfum þar sem konur eru í meirihluta. Í starfshópnum áttu sæti fulltrúar frá forsætisráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, félagsmálaráðuneyti, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og heildarsamtökum á vinnumarkaði.

Dregið hefur úr launamun á undangengnum árum m.a. fyrir tilstuðlan aðgerða á borð við starfsmat hjá sveitarfélögunum og jafnlaunavottun. Þessi tæki duga hins vegar ekki til þess að leiðrétta launamun sem stafar af kynbundinni skiptingu vinnumarkaðar í störf og atvinnugreinar sem skýrir að miklu leyti þann launamun sem enn er til staðar, líkt og launarannsókn Hagstofu Íslands sem birt var í dag staðfestir. Forsenda þess að unnt sé að leiðrétta þennan mun er að hægt sé að meta heildstætt virði ólíkra starfa. 

Til þess að styrkja framkvæmd jafnlaunamarkmiðs jafnréttislaga eru lagðar fram eftirfarandi tillögur til aðgerða:

Aðgerðahópur stjórnvalda um launajafnrétti með aðild aðila vinnumarkaðarins fái eftirfarandi hlutverk:

  • Að koma á fót þróunarverkefni um mat á virði starfa með það að markmiði að skapa verkfæri sem tekur yfir jafnvirðisnálgun laganna. Verkfærin styðji við þau tæki sem þegar eru í notkun.
  • Að þróa samningaleið um jafnlaunakröfur með aðilum vinnumarkaðarins. Þar verði m.a. horft til þess hvaða áhrif breytingar á ráðningasamböndum og útvistun starfa hafa á launamun kynjanna.
  • Að stuðla að þekkingaruppbyggingu og vitundarvakningu.

Forsætisráðherra mun skipa aðgerðahóp um launajafnrétti og jafnrétti á vinnumarkaði í samræmi við framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum 2020-2023 og verður honum falið að fylgja skýrslu starfshópsins eftir.

Verðmætamat kvennastarfa - Tillögur starfshóps forsætisráðherra um endurmat á virði kvennastarfa

Umsagnarfrestur við skýrslu starfshóps um endurmat á störfum kvenna er til 5. október nk. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum