Hoppa yfir valmynd
1. desember 2021 Dómsmálaráðuneytið

Hreinn Loftsson ráðinn aðstoðarmaður innanríkisráðherra

Hreinn Loftsson - myndDMR
Hreinn Loftsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar, innanríkisráðherra. Hreinn lauk laganámi frá Háskóla Íslands árið 1983, var við framhaldsnám í Oxford 1984-85 og öðlaðist réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómstólum árið 1988 og Hæstarétti árið 1993. Hann á að baki fjölbreyttan feril í lögmennsku, atvinnulífi, stjórnsýslu og sem aðstoðarmaður ráðherra í viðskipta-, utanríkis- og samgönguráðuneytunum á árunum 1983-1988, forsætisráðuneytinu árin 1991-1992 og dómsmálaráðuneytinu árin 2019-2021. Hann var sjálfstætt starfandi lögmaður á árunum 1988 til ársins 1991 og frá árinu 1992 til ársins 2019. Hreinn hefur setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja og átt sæti í ýmsum stjórnum og nefndum, auk starfs á vettvangi stjórnmála.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum