Hoppa yfir valmynd
31. janúar 2022 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Ásdís Halla tímabundið sett ráðuneytisstjóri háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis

Ásdís Halla Bragadóttir. - mynd

Ásdís Halla Bragadóttir verður sett ráðuneytisstjóri háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis frá 1. febrúar nk. Setningin er tímabundin til þriggja mánaða á meðan auglýst er eftir ráðuneytisstjóra fyrir hið nýja ráðuneyti.

Það er Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra sem setur í embættið. Ákvörðunin er tekin á grundvelli laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins þar sem kveðið er á um heimild um setningu.

Ásdís Halla hefur fjölþætta reynslu úr bæði stjórnsýslu og atvinnulífi. Hún lauk meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu frá Harvard háskóla og MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Hún var m.a. bæjarstjóri í Garðabæ, aðstoðarmaður menntamálaráðherra, sat í háskólaráði HR og Kennaraháskólans. Síðustu ár hefur hún komið að stofnun og rekstri fyrirtækja í heilbrigðis- og velferðarþjónustu ásamt því að sinna ritstörfum.

Hlutverk nýs ráðuneytis er kynnt í forsetaúrskurði sem birtur er í dag en hann öðlast gildi 1. febrúar 2022. Þann sama dag tekur ráðuneytið til starfa. Með stofnun nýs ráðuneytis er ætlunin að tengja betur háskóla, vísindi, iðnað og nýsköpun. Það endurspeglar áherslur ríkisstjórnarinnar á að takast á við áskoranir fjórðu iðnbyltingarinnar og nýta hraðfleygar tæknibreytingar og stafræna umbyltingu í þágu samfélagsins alls, líkt og segir í þingsályktunartillögu um breytta skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Þar segir jafnframt að á 21. öldinni hafi orðið bylting í þekkingariðnaði þar sem vísindi og rannsóknir á háskólastigi hafa gegnt lykilhlutverki. Stjórnkerfi hvers ríkis þurfi að laga skipulag sitt að þeim veruleika.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum