Hoppa yfir valmynd
1. febrúar 2022 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

„Ferðamenn eyði 700 milljörðum á Íslandi árið 2030“

„Ferðamenn eyði 700 milljörðum á Íslandi árið 2030“ - myndBirgir Ísleifur Gunnarsson
  • Bætum samkeppnishæfni Íslands
  • Fjölga störfum í menningu og skapandi greinum
  • Endurreisum ferðaþjónustuna

„Með samþættingu málefnasviða nýs menningar- og viðskiptaráðuneytis eru skapaðar forsendur fyrir ný tækifæri og sókn í þágu samfélagsins alls og stuðlað að vexti og velsæld til framtíðar,” sagði Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamála-, menningar- og viðskiptaráðherra á opnum kynningarfundi í Norðurljósasal Hörpu í dag. Nýtt menningar- og viðskiptaráðuneyti tekur til starfa í dag.

 

Hér má horfa á kynningarfundinn:

 

Verðmætasköpun í skapandi umhverfi

Í menningar- og viðskiptaráðuneytinu mætast málaflokkar viðskipta, ferðaþjónustu og menningar. Sköpun og ferðaþjónusta eru skurðpunktar milli menningar og viðskipta.

„Málaflokkar nýs ráðuneytis vera burðarásar í gjaldeyrissköpun þjóðarbúsins til framtíðar. Markmiðið er að ferðamenn eyði 700 milljörðum króna hér á landi árið 2030,“ sagði ráðherra. „Hlutverk ríkisins er að móta umhverfi þar sem sköpunarkrafturinn þrífst, verðmætaskapandi umhverfi fyrir atvinnu- og menningarlíf. Það styrkir samkeppnishæfni okkar sem ekki aðeins snertir atvinnulífið heldur allt samfélagið í heild sinni.“

 

Ferðaþjónusta- Menning- Viðskipti: Umhverfi fyrir vöxt og velsæld

  • Ljóst er að ferðaþjónustan og menningargeirinn njóta gagnkvæms ávinnings af velgengni og hagsmunir þeirra að miklu leyti samofnir. Þannig hafa íslenskir menningarviðburðir á borð við tónlistar- og kvikmyndahátíðir verið aðdráttarafl ferðamanna um árabil. 
  • Að sama skapi njóta skapandi greinar góðs af stærri markaði sem fylgir fjölgun ferðamanna og aukinni eftirspurn eftir íslenskri list og menningu.
  • Með stuðningskerfi skapandi greina og almennri lagaumgjörð viðskiptalífsins skapast grundvöllur til framþróunar .
  • Meginmarkmiðið er að styrkja samkeppni innanlands, tryggja stöðu neytenda betur í nýju umhverfi netviðskipta og efla alþjóðlega samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.

 

Fyrstu hundrað dagarnir

Ráðherra kynnti helstu verkefni  fyrstu 100 daga nýs ráðuneytis þar á meðal áframhald markaðsátaksins Saman í sókn, lokum endurskoðunar á skipulagi og starfsemi lista- og menningarsjóða og starfslauna listamanna, heildarstefnumótun í neytendamálum og undirbúning að stofnun Tónlistarmiðstöðvar og gerð tónlistarstefnu.

„Við ætlum að byggja á því góða sem er til staðar, sækja fram og hækka sköpunarvísitölu Íslands – þannig stuðlum við  að endurreisn efnahagslífsins og tryggjum góðan grundvöll til framtíðar. Það er hugvitið, þekkingin og sköpunin sem er megindrifkraftur þeirra framfara sem við stefnum að,“ segir Lilja.

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum