Hoppa yfir valmynd
23. febrúar 2022 Forsætisráðuneytið

Fanney Rós skipuð ríkislögmaður

Fanney Rós Þorsteinsdóttir - mynd

Forsætisráðherra hefur skipað Fanneyju Rós Þorsteinsdóttur ríkislögmann frá og með 28. febrúar næstkomandi. Er Fanney Rós fyrsta konan sem er skipuð í embætti ríkislögmanns.

Fanney Rós lauk embættisprófi frá lagadeild Háskóla Íslands í júní 2005 og framhaldsnámi (LLM) við Columbia-háskóla 2012. Hún hefur starfað hjá embætti ríkislögmanns frá árinu 2012 en áður var hún aðstoðarmaður hæstaréttardómara, fulltrúi hjá Mörkinni lögmannsstofu og ritari kærunefndar útboðsmála. Þá var hún um skeið stundakennari við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Fanney Rós hlaut réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi 2006 og fyrir Hæstarétti 2014.

Fanney Rós hefur fjölbreytta og yfirgripsmikla reynslu af málflutningi á öllum dómstigum auk þess sem hún hefur flutt mörg mál fyrir Mannréttindadómstól Evrópu.

Tveir sóttu um embættið og fól forsætisráðherra ráðgefandi hæfnisnefnd að leggja mat á hæfni þeirra. Annar umsækjandinn dró umsókn sína til baka áður en nefndin tók til starfa. Í mati hæfnisnefndar er Fanney Rós talin uppfylla öll hæfis- og hæfnisskilyrði.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum