Hoppa yfir valmynd
1. mars 2022 Dómsmálaráðuneytið

Skera upp herör gegn kynferðisofbeldi á djamminu

Dómsmálaráðuneytið, ríkislögreglustjóri (RLS) og Neyðarlínan hafa hrundið af stað vitundarvakningu gegn kynferðisofbeldi og í fyrsta hluta hennar er sjónum beint að skemmtanalífinu. Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra, Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri og Þórhallur Ólafsson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar, kynntu nýja kynningarherferð helgaða málefninu á blaðamannafundi á Hótel Borg fyrr í dag. Herferðin hefur verið nokkurn tíma í undirbúningi og var ákveðið að hrinda henni af stað núna, þegar „djammið“ er að komast í fullan gang eftir Covid-takmarkanir. Hinir ýmsu forsvarsmenn skemmtanalífsins komu að undirbúningi herferðarinnar með stjórnvöldum.
Fjöldi tilkynntra nauðgana dróst saman um 43% þegar samkomutakmarkanir voru sem strangastar
Samkvæmt tölum RLS á meginþorri tilkynntra nauðgana til lögreglu sér stað um helgar, frá föstudegi til sunnudags og þá sér í lagi frá miðnætti til sex um morguninn. Árið 2020 voru samkomutakmarkanir í tengslum við Covid-19 sem strangastar og skemmtanalíf því í lágmarki. Þá fækkaði tilkynntum nauðgunum um 43% miðað við meðaltal áranna 2017-2019. Alls voru skráðar 114 nauðganir hjá lögreglunni það ár, en meðaltalið á fyrrnefndu árabili var 201.
Tilkynntum nauðgunum fjölgaði síðan á ný í fyrra en slakað var á samkomutakmörkunum hluta af árinu 2021. Þá voru skráðar nauðganir alls 150 talsins sem nemur 32% fjölgun frá árinu áður. Breytingar á takmörkunum höfðu því greinileg áhrif á tíðni nauðgana.
Verum vakandi og spyrjum: Er allt í góðu?
Á grunni þessara upplýsinga ákvað dómsmálaráðherra, í samráði við starfshóp gegn kynbundnu ofbeldi, að efnt yrði til vitundarvakningar í samvinnu dómsmálaráðuneytis, ríkislögreglustjóra, Neyðarlínu, lögregluembættanna og fleiri ólíkra aðila sem koma að skemmtanalífi landsmanna. Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri, leiðir hópinn en í honum sitja jafnframt Guðfinnur Sigurvinsson, Hildur Sunna Pálmadóttir og Eygló Harðardóttir.
Skilaboð herferðarinnar eru skýr og einföld til allra sem málinu tengjast: Verum vakandi – er allt í góðu? Í auglýsingum, sem beint verður að fólki á djamminu og í kringum það, er það hvatt til þess að vera vakandi og að kanna aðstæður óhikað með því að spyrja einfaldlega; Er allt í góðu? Ef svo reynist ekki vera á að hafa samband við 112 í síma, á vefnum eða í appinu.
---
Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra: „Ég hef lagt áherslu á að til að draga úr kynferðisbrotum þurfi að virkja allt samfélagið. Að öll verðum við að vera vakandi og ekki sé hægt að horfa framhjá ábyrgð okkar á að uppræta þetta mein í íslensku samfélagi. Reynsla okkar í gegnum heimsfaraldurinn sýnir að það þurfi ekki að vera eitthvað lögmál að nauðganir eða annað ofbeldi eigi sér stað. Við viljum öll aftur líf án sóttvarnartakmarkana en við viljum einnig líf án ofbeldis. Í þeim tilgangi förum við í þessa vitundarvakningu gegn kynferðisofbeldi.“
--- Nánari upplýsingar veitir Guðfinnur Sigurvinsson, ráðgjafi ráðherra gegn kynbundnu ofbeldi, á netfanginu [email protected] eða í s: 669-9330.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum