Hoppa yfir valmynd
4. mars 2022 Forsætisráðuneytið

Herdís Steingrímsdóttir skipuð í peningastefnunefnd

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur skipað Herdísi Steingrímsdóttur, dósent í hagfræði við Copenhagen Business School, í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands til næstu fimm ára. Herdís tekur sæti Katrínar Ólafsdóttur sem setið hefur í peningastefnunefnd í 10 ár sem er hámarksskipunartími í nefndinni.

Herdís er með doktorspróf í hagfræði frá Columbia háskólanum í New York og meistarapróf í stærðfræðilegri hagfræði og hagrannsóknum frá London School of Economics. Rannsóknir Herdísar snúa að vinnumarkaðshagfræði og hefur hún hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir störf sín á þeim vettvangi. Þá er Herdís meðlimur og umsjónarmaður ýmissa rannsóknasetra í Kaupmannahöfn sem greina hagfræðileg úrlausnarefni er varða lífeyrismál, ójöfnuð, hagfræði heimilanna o.fl.

Herdís Steingrímsdóttir

Herdís Steingrímsdóttir

Um peningastefnunefnd

Peningastefnunefnd tekur ákvarðanir um beitingu stjórntækja Seðlabankans í peningamálum. Stjórntæki bankans í þessu sambandi eru vextir bankans, viðskipti við lánastofnanir og önnur þrautavaralán, ákvarðanir um bindiskyldu og viðskipti á gjaldeyrismarkaði sem hafa það markmið að hafa áhrif á gengi krónunnar.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum