Hoppa yfir valmynd
8. mars 2022 Matvælaráðuneytið

Rússneskum karfaveiðiskipum ekki lengur heimilt að koma til Íslands

Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra - mynd

Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, lagði fram minnisblað á ríkisstjórnarfundi í morgun um að afturkalla undanþágu sem hefur verið í gildi fyrir rússneska togara til löndunar og umskipunar í íslenskum höfnum. 

„Það fer gegn hagsmunum Íslands að auðvelda veiðar annarra þjóða á stofnum sem ekki eru nýttir á sjálfbæran hátt, því hef ég ákveðið að afturkalla þessa undanþágu. Þessu til viðbótar er það mat íslenskra stjórnvalda að framferði Rússa sé með þeim hætti að óverjandi er að viðhalda sérstökum undanþágum þeim til hagsbóta,“ segir Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra

Samkvæmt lögum um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands erlendum skipum óheimilt að koma til hafnar á Íslandi og fá hér þjónustu stundi skipið veiðar eða vinnslu á afla úr sameiginlegum nytjastofnum og íslensk stjórnvöld hafa ekki gert milliríkjasamning um nýtingu á, svo sem hagar til um karfa á Reykjaneshrygg.

Heimild er í lögum til að veita undanþágu frá löndunar- og þjónustubanni vegna slíkra veiða og hefur rússneskum togurum sem stunda veiðar á karfa verið veitt slík undanþága frá árinu 1999. Fram til þessa hefur verið litið til heildarviðskiptahagsmuna við Rússland við mat á  þessari undanþágu. Á undanförnum árum hefur  ítrekað komið til skoðunar að afturkalla undanþáguna. Með hliðsjón af nýju mati á hagsmunum Íslands í samskiptum við Rússland vegna innrásar Rússlands í Úkraínu hefur ráðherra tekið ákvörðun um að afturkalla þessa undanþágu.

Rússneskum stjórnvöldum verður tilkynnt formlega um málið og þá verður tilkynningin einnig send í gegnum alþjóðlega tilkynningarkerfið á vegum Landhelgisgæslu Íslands. 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum